Reglur um öryggismyndavélar á pósthúsum, póstmiðstöð og við póstbox
Íslandspósts og meðferð upplýsinga sem safnast
1.1. Öryggismyndavélar á pósthúsum, póstmiðstöð Íslandspósts (Stórhöfða 32) og við póstbox
Íslandspósts eru eingöngu til öryggis- og eignavörslu og aðeins má nota upplýsingar sem safnast í
þeim tilgangi
2.1. Íslandspóstur ohf., Stórhöfða 29, 110 Reykjavík er ábyrgðaraðili vinnslu persónuupplýsinga
sem safnast með öryggismyndavélum á pósthúsum, póstmiðstöð og við póstbox fyrirtækisins.
3.1. Upplýsingar úr öryggismyndavélum má ekki varðveita lengur en 90 daga.
3.2. Geymslu upplýsinga skal vera þannig háttað að engir aðrir en þeir sem hafa skilgreindan
aðgang að upplýsingunum, geti komist í þær
4.1. Viðskiptavinum og starfsmönnum skal gert viðvart um öryggismyndavélar, með merki eða á
annan áberandi hátt.
Innanhús
5.1. Kerfisstjórar hafa umsjón með öryggismyndavélum og eru þeir einu sem hafa leyfi til að skrifa
út upptökur.
5.2. Framkvæmdarstjóri, forstöðumaður og yfirmaður viðkomandi vinnustaðar mega skoða
upptöku í rauntíma og upptökur, sbr. þó gr. 1.1
Til utanaðkomandi aðila
5.3. Heimilt er að afhenda lögreglu eða dómsyfirvöldum upplýsingar úr öryggismyndavélum ef um
slys eða meintan refsiverðan verknað er að ræða.
5.4. Einungis er heimilt að afhenda öðrum en ofangreindum aðilum upplýsingar úr
öryggismyndavélum, ef samþykki þess sem upplýsingarnar snerta liggur fyrir eða samkvæmt
ákvörðun Persónuverndar eða dómsyfirvalda.
5.5. Beiðni með ósk um afhendingu upplýsinga skal vera skrifleg og berast framkvæmdastjóra starfsmannasviðs.
6.1. Reglur um öryggismyndavélar á pósthúsum, póstmiðstöð og við póstbox Íslandspósts og
meðferð upplýsinga sem safnast skal endurskoðuð árlega og vera aðgengileg fyrir alla
starfsmenn, viðskiptavini og eftir því sem við á
Gildir frá: 08. apríl. 2011
Uppfært: 09.nóvember. 2018
Útgáfudagur: 09.nóvember. 2018
Til endurskoðunar: 09.nóvember. 2019
Ábyrgð: Formaður öryggisnefndar
Velkomin á vefsíðu Póstsins. Þessi síða notar fótspor (e. cookies) til að bæta upplifun þína á vefnum. Lesa nánar um notendaskilmála hér