Vöruhýsing

Láttu okkur sjá um lagerinn fyrir þig.

Vöruhýsing hentar t.d. heildverslunum og netverslunum.

Vöruhýsing Póstsins er tækifæri fyrir einstaklinga og minni fyrirtæki sem stunda viðskipti og verslun á internetinu og vilja ná fram hagræðingu í rekstri til að nýta tímann til að ná árangri í sölu.

Við erum sérfræðingar á okkar sviði og vitum hvað það er að miðla vörum frá birgja til viðskiptavina með tilheyrandi skýrslugerð, lagerhaldi og skutli til viðskiptavina.

Þess vegna getum við sniðið Vöruhýsingu frá grunni að þörfum viðskiptavina ykkar, sem okkar.

Með því að nýta Vöruhýsingu lætur þú okkur um að tollafgreiða vöruna með tilfallandi pappírsvinnu og geyma allan lager á öruggu svæði sem þú borgar fyrir eftir því hve mikið pláss þú notar. Og þegar þú ert búin að selja vöruna sjáum við um að pakka henni og senda þangað sem þú vilt að hún fari.

Þetta gerist ekki einfaldara.

Viltu vita meira?