01.02.2012

Fyrirtækjaþjónusta

Verðbreyting 1. febrúar 2012

verðskrá Póstsins tekur gildi 1. febrúar 2012. Hægt er að nálgast hana á heimasíðu okkar, www.postur.is

Fyrir mistök var send út tilkynning um hækkun á bréfum og pökkum til útlanda að meðaltali um 6%. Þær vörur hækkuðu um liðin mánaðarmót, frá og með 1. janúar. Beðist er velvirðingar á þessum mistökum.

Verðbreytingar frá 1.febrúar:

  • Rúmfrek bréf hækka um 5,6%
  • Pakkar innanlands hækka um 8,6%
  • Fyrirtækjaþjónustan hækkar um 8,2%
  • Pósthólf hækka um 7,3%
  • Móttökukvittun hækkar um 5,7%
  • Heimsendingargjald hækkar um 8,1%

Nánari upplýsingar veitir Fyrirtækjaþjónusta Póstsins í síma 580-1100.


Fyrirspurnir er hægt að senda á netfangið thjonusta@postur.is eða nýta netsamtal á www.postur.is.