Merkingar
Er þitt heimili nægilega vel merkt?
Til að koma í veg fyrir áreiti og fyrirhöfn sem hlýst af því að fá annarra manna póst inn á þitt heimili er mikilvægt að merkja vel íbúa heimilisins á lúgu eða póstkassa. Það hjálpar okkur að bæta þjónustu við viðskiptavini okkar. Réttar merkingar þýðir réttur póstur á heimilið og kemur í veg fyrir að pósturinn þinn sé endursendur til sendanda.
Stærð og staðsetning á bréfalúgum og póstkössum
Bréfalúgur þurfa að vera minnst 25 x 260 mm að stærð í 1000 til 1200 mm hæð frá gólfi. Hið sama á við um einstaka póstkassa. Póstkassasamstæður skulu festar á vegg þannig að neðsta bréfarifa sé lágmark 700 mm frá gólfi og efsta hámark 1750 mm frá gólfi.
Merking bréfalúgu og póstkassa
Æskilegt er að nöfn allra sem hafa aðsetur á viðkomandi heimili/fyrirtæki séu skráð á póstkassa, við póstlúgu eða á bjöllu. Góðar merkingar létta bréfberum og bílstjórum störfin og pósturinn kemst fyrr í hendur viðtakenda.
Húsnúmer
Miklu skiptir að húsnúmer séu skýr og greinileg allan ársins hring. Aðsetur fyrirtækja þarf að vera vel merkt við inngang og á viðkomandi hæð.
Gott aðgengi
Greiður aðgangur að bréfalúgum og póstkössum er mjög mikilvægur. Lýsing við bréfalúgur/póstkassa þarf að vera góð. Þá eru það vinsamleg tilmæli að tröppur séu mokaðar og salti eða sandi stráð á hálkubletti á veturna þegar allra veðra er von.
Fjölbýlishús
Þegar fleiri en þrjár íbúðir hafa sameiginlegan inngang er nauðsynlegt að setja upp póstkassasamstæður sem næst aðalanddyri svo bréfberi hafi óhindraðan aðgang að þeim. Í anddyri fjölbýlishúsa þarf að vera skrá yfir alla íbúa hússins. Þar þarf að koma fram á hvaða hæð þeir búa og númer íbúðar. Er þetta í samræmi við ákvæði byggingareglugerðar nr. 441/1998 kafla 80.2. Póstkassi þarf að fylgja hverri íbúð í fjölbýlishúsi.
Dreifbýli
Þegar bifreiðar eru notaðar við póstdreifingu þurfa póstkassar að vera við vegamót eða girðingarhlið. Í margbýli skulu póstkassarnir standa hliðvið hlið. Ekki má hafa póstkassana rauða en að öðru leyti gilda sömu reglur um þá og aðra póstkassa. Landpóstar annast víðast hvar póstþjónustu í dreifbýli.