Vinnustaðurinn

DreifingarstodHjá Póstinum vinna að meðaltali um 1.300 starfsmenn í um 1.000 stöðugildum. Vinnustaðir fyrirtækisins eru um 88, en þeim fer fækkandi þar sem Pósturinn leitar eftir samstarfi við önnur fyrirtæki, svo sem verslanir og banka til að sinna póstafgreiðslu.

Pósturinn er fjölbreyttur vinnustaður. Má þar meðal annars nefna störf eins og bréfaútburð, útkeyrslu, afgreiðslu, flokkun í póstmiðstöð, sölu- og markaðsmál, bókhald og starfsmannamál.

Mannauðurinn er ein af mikilvægustu auðlindum fyrirtækisins og er lögð mikil áhersla á að aðbúnaður starfsmanna sé eins og best verður á kosið, þ.e. öryggi á vinnustöðum og ekki síst félagslegir þættir í starfsumhverfi.

Fræðslumál

PóstgangaFræðslumál vega þungt enda hæft og vel þjálfað starfsfólk einn mikilvægasti hlekkur í fyrirtækinu.

Í starfsmannastefnu fyrirtækisins kemur meðal annars fram að starfsfólk er valið af kostgæfni og að áhersla er lögð á það að starfsmaðurinn finni að honum sé treyst í starfi sínu. Stjórnendum ber að sýna hæfni í samskiptum, sveigjanleika, frumkvæði og jákvætt hugarfar ásamt því að ná fram samheldni og góðum liðsanda á vinnustöðum fyrirtækisins.

Starfsmannafélag

Öflugt starfsmannafélag hefur meðal annars staðið fyrir sumarferðum, þorrablótum, spilakvöldum, gönguferðum og fleiri viðburðum. Starfsmenn meta þetta mikils og er þátttaka að jafnaði góð.

Auk hinnar árlegu póstgöngu, sem um 200 manns taka þátt í, og sumarhátíðar meðal starfsmanna heldur Pósturinn glæsilega árshátíð þar sem milli 900 og 1.000 manns koma saman og eiga góða og glaða stund.

Gæðamál

Stjórnendur Íslandspósts hafa mótað gæðastefnu fyrirtækisins. Í henni kemur fram að áhersla er lögð á að starfsemi fyrirtækisins einkennist af þjónustulund og öguðum vinnubrögðum svo uppfylla megi þarfir og væntingar viðskiptavina með þeim hætti að almenn ánægja ríki með starfsemi Íslandspósts.

Nánar

Laus störf

Starfsumsókn





Í dag er:

11.3.2010

Leturstærð



Leit