Heimilisfangalistinn minn

Heimilisfangalistinn minnHeimilisfangalistinn minn er þjónusta þar sem þú getur búið til þinn eigin heimilisfangalista þér að kostnaðarlausu. Þú getur skráð þig inn og byrjað strax að búa til heimilisfangalista, eins marga og þú vilt.

Kostir heimilisfangalista:

  • Þú getur átt marga lista, einn fyrir jólakort og annan fyrir boðskort
  • Þú getur leitað í póstfangagrunni eftir nafni eða kennitölu
  • Þú getur líka slegið inn upplýsingar ef þú vilt frekar t.d. fyrir erlend heimilisföng
  • Þú getur hakað við að láta Póstinn uppfæra, þá áttu alltaf réttan lista
  • Þú getur valið að breyta viðtakanda hvenær sem er t.d. til að geyma líka netfang
  • Þú getur valið viðtakendur af heimilisfangalistanum þínum þegar þú hannar og sendir kort á Kortavefnum.

Þetta er bara þægilegt, prófaðu núna.

Opna heimilisfangalistann minn

Nýr notandi? Stofnaðu aðgang

 

Heimilisfangalistinn minn og Kortavefurinn

Áritað umslag með jólafrímerkiEftir að þú hefur stofnað Heimilisfangalistann minn, getur þú farið á Kortavefinn og sótt nöfnin sem eru á Heimilisfangalistanum. Á Kortavefnum er hægt að panta límmiða, árituð umslög og nokkrar stærðir af kortum.

Kort eru borin út beint til viðtakenda, en límmiðar og umslög eru ásamt frímerkjum send heim til kaupanda. Kortavefurinn ásamt heimilisfangalistanum sparar þannig bæði tíma og fyrirhöfn.

Kortavefurinn

 





Í dag er:

11.3.2010

Leturstærð



Leit