Breyta heimilisfangi
Þegar þú flytur þarft þú að breyta heimilisfangi þínu og fjölskyldunnar hjá Póstinum. Til að áframsending taki gildi þarf að greiða þjónustugjald fyrir það tímabil sem óskað er eftir.
Áframsendingar gilda aðeins fyrir almenn bréf, bæði innanlands og erlendis. Bréf sem eru stíluð á gamla heimilisfangið eru áframsend á nýja heimilisfangið, á því tímabili sem þjónustugjald er greitt fyrir.
Einnig er hægt að breyta heimilisfangi án þess að greiða þjónustugjald en þá mun áframsending ekki taka gildi og því verða endursend þau bréf sem berast á gamla heimilisfangið.
Óskir þú ekki eftir að fá fjölpóst á nýja heimilisfangið, þarf að fylla út umsókn um engan fjölpóst.
Einnig þarf að tilkynna um breytt heimilisfang til:
Pósturinn sér ekki um slíkar tilkynningar.
Sjá nánar
Verð áframsendinga
Breyta heimilisfangi innanlands
Breyta heimilisfangi erlendis
Hafðu samband
Þjónustuver Póstsins er opið alla virka daga frá kl. 8:00 - 18:00