Pantað á netinu

Þegar þú pantar vörur á netinu og færð þær sendar með Póstinum eru nokkur atriði sem hafa þarf í huga.

Pantaðu á netinu og fáðu sent heim með Póstinum.

Allar innfluttar vörur þarf að tollafgreiða. Ef fullnægjandi upplýsingar um verðmæti eru utan á sendingunni er hún tollafgreidd strax og send til þín. Ef heildarverðmæti er innan við 30.000 kr og innflutningur er ekki í atvinnuskini, er hægt að gera einfalda tollskýrslu annars er gerð hefðbundin tollskýrsla.

Ef upplýsingar vantar sendum við þér tilkynningu. Þú getur fengið tilkynningu um tollskylda sendingu í tölvupósti, það flýtir fyrir í ferlinu.

Ef þú færð tilkynningu þarft þú að senda eftirfarandi til okkar á tollmidlun@postur.is: Hafðu viðtökunúmer sendingarinnar í Efni (e. Subject).

Lýsandi innihaldslýsing er mikilvæg til þess að hægt sé að setja vöruna í réttan tollflokk.

Algengt er að vanmeta heildarkostnað við innflutning, því við verð vöru bætist sendingarkostnaður, tollgjöld í viðkomandi tollflokki, virðisaukaskattur og umsýslugjöld við innflutninginn. Þú getur nálgast upplýsingar um tollgjöld á reiknivél tollstjóra www.tollur.is.