SMS tilkynning
Gefðu upp gsm númer viðtakanda og hann fær senda sms tilkynningu.
Gefðu upp GSM númer viðtakanda og við sendum honum sms.
Þegar þú sendir pakka innanlands getur þú látið okkur í té gsm númer viðtakanda. Þá getum við sent SMS tilkynningu til hans þegar pakkinn er á leiðinni til hans síðasta spölinn.
Með því að skrá sendingu getur þú fyllt út allar upplýsingar og prentað út fylgibréf sem þú límir á pakkann, áður en þú kemur með hann á pósthús eða fyrirtækjaþjónustan sækir hann.
Svona virkar SMS tilkynningin
SMS Pakki pósthús
Þegar sendandi velur pakki pósthús fær viðtakandi senda SMS tilkynningu um leið og pakkinn kemur á pósthúsið og því er hægt að sækja sendinguna samdægurs.
SMS Pakki heim
Þegar sendandi velur pakki heim fær viðtakandi senda SMS tilkynningu áður en útkeyrsla er reynd og viðtakandi getur því gert viðeigandi ráðstafanir.
Gerð er ein tilraun til afhendingar og sé hún árangurslaus er skilin eftir tilkynning. Í þeim tilfellum má nálgast pakkann á viðkomandi pósthúsi næsta virka dag gegn framvísun tilkynningarinnar.