Póstkröfur innanlands
Póstkröfur innanlands er þjónusta þar sem hægt er að láta viðtakanda greiða fyrir innihald eða aðra þjónustu við afhendingu sendingar. Efst á framhlið sendingarinnar skal sendandi rita orðin „Póstkrafa" ásamt upphæð póstkröfunnar. Útstrikanir eða yfirstrikanir á upphæð eru ekki leyfðar. Líma skal á sendinguna appelsínugulan þríhyrndan miða.
Póstkröfur eru viðbótarþjónusta á pakka innanlands og annað hvort þarf að útbúa fylgibréf með sendingunni þar sem hakað er í póstkröfu eða útbúa fylgibréf í Póststoð. Meðan póstkröfusending er í vörslu póstrekanda getur sendandi skriflega beðið um að sendingin sé afhent viðtakanda án greiðslu eða gegn greiðslu annarrar upphæðar en á sendingunni stendur.
Ekki er lengur mögulegt að senda póstkröfur til útlanda.
Póstkröfur skulu innleystar innan 30 daga frá komu þeirra á pósthús en sendandi getur skriflega gefið allt að 30 daga frest. Póstkröfur eru skráðar við móttöku á pósthúsi, einnig við afhendingu þeirra eða endursendingu. Póstkröfur eru greiddar inn á bankareikning sendanda innan 3ja virkra daga frá innlausn póstkröfu.
Stærðarmörk
Stærðarmörk póstkröfu eru þau sömu og á pökkum innanlands.
Afhending póstkröfu
Póstkrafa er afhent á ákvörðunarstað gegn greiðslu póstkröfuupphæðarinnar. Engin hámarksupphæð er á póstkröfu.
Greiðslumöguleikar
Viðtakandi getur greitt póstkröfu við móttöku sendingar hvort heldur er á pósthúsi eða í útkeyrslu með debetkorti eða reiðufé.
Hámarksupphæð
Engin hámarksupphæð er á póstkröfum.
Hafðu samband
Fyrirtækjaþjónusta Póstsins er opin alla virka daga frá kl. 9:00 - 17:00