Bréf til útlanda

Veldu A-póst eða B-póst þegar þú sendir bréf úr landi.

Tollmidi, rétt útfylltur af sendanda, flýtir fyrir tollafgreiðslu.

Bréf til útlanda er hægt að senda með mismunandi forgangi sem A- Póst eða B - Póst. Almenn bréf til útlanda lúta að mestu leyti sömu reglum og almenn bréf innanlands. Verð tekur mið af forgangi þ.e. A eða B pósti og hvort sent sé innan eða utan Evrópu. Sömu reglur gilda og fyrir almenn bréf innanlands varðandi þyngdarflokka, innihald, burðargjald, póstlagningarmáta og skaðabætur.

Flutningstími

Mikilvægt er að merkja bréf til útlanda með A eða B miða á greinilegum stað utanáskriftarmegin til að tryggja að bréfin fái rétta meðhöndlun. Upplýsingar miðast við algengasta flutningstíma en mögulegt er að flutningstími sé lengri ef óvenjulegar tafir verða í flutningi.

Norðurlönd Vestur Evrópa Önnur Evrópulönd utan Evrópu
A-póstur 2-3 virkir dagar 2-4 dagar 3-5 virkir dagar 4-15 virkir dagar
B-póstur 5-10 virkir dagar 6-15 virkir dagar 10-20 virkir dagar 15-30 virkir dagar

Tollmiði

Tollmiða skal nota á allar bréfasendingar (almenn bréf til útlanda og ábyrgðarbréf) sem innihalda annað en skjöl.

Ef sendingar innihalda annað en skjöl verður að fylla út einfalda tollskýrslu (tollmiða) þar sem fram kemur á tungumáli móttökulands eða ensku innihald og virði. Lönd hafa mismunandi reglur um það hvað má senda til þeirra í pósti og því gott að ráðfæra sig við þjónustuver ef senda á annað en skjöl í bréfapósti.

Ábyrgðarbréf til útlanda

Ábyrgðarbréf til útlanda eru send sem A póstur, bæði til Evrópu og utan Evrópu. Ábyrgðarbréfum til útlanda er komið til viðtakanda með fyrsta mögulega flugi. Að öllu jöfnu gilda sömu gæðastaðlar hvað varðar flutningstíma eins og fyrir almenn bréf til útlanda. Ef keypt er Exprès þjónusta á ábyrgðarbréf fara þau í forgang við komu til viðtökulands.