Viðskiptapakkar til útlanda
Með því að nýta sér þjónustuna Viðskiptapakkar til útlanda tryggja fyrirtæki viðskiptavinum sínum betri þjónustu.
Betri þjónusta, skráð og rekjanleg sending, heimkeyrsla og tollskýrslugerð í ákvörðunarlandi.
Viðskiptapakka er hægt að senda til þeirra landa sem hafa gert með sér samkomulag um forgangsmeðferð slíkra sendinga. Ákvörðunarlöndin eru öll ESB lönd fyrir utan Búlgaríu, Kýpur, Lettland, Möltu og Rúmeníu. Auk þess Lúxemborg, Noregur og Sviss.
Póstlagning
Viðskiptapakka til útlanda þarf að póstleggja með því að nota skrá sendingu. Burðargjald viðskiptapakka felur í sér tollskýrslugerð í ákvörðunarlandi og afhendingu heim að dyrum. Sendingar eru skráðar og rekjanlegar. Sendandi getur beðið um sönnun fyrir móttöku (Proof of Delivery) allt að ári eftir póstlagningu.
Hvað er hægt að senda?
Leyfileg stærðar- og þyngdarmörk eru breytileg eftir ákvörðunarlöndum, sem og flutningstími, sjá nánar í viðskiptaskilmálum. Takmarkanir á innihaldi viðskiptapakka til útlanda eru þær sömu og á innihaldi pakka innanlands. Það er á ábyrgð sendanda að afla sér upplýsinga um innflutningshöft í ákvörðunarlandi sendingar.
Viðskiptapakki eða venjulegur?
Hvor kosturinn hentar þér fer eftir því hvað þú ert að senda og hvaða þjónustu þú vilt bjóða viðskiptavinum þínum upp á.
|
| Pakki til útlanda
| Viðskiptapakki til útlanda |
| Skaðabætur |
22.500 kr. |
82.350 kr. |
| Heimkeyrsla |
Nei |
Já |
| Þyngdarmörk |
Já |
Já |
| Hægt að nota pappírs fylgibréf |
Já |
Nei |
| Hægt að nota rafræn fylgibréf |
Já |
Já |
| Svæði |
Allur heimurinn |
Evrópa (sjá nánari útlistun) |
| Viðbótarþjónusta til útlanda í boði |
Já |
Nei |
| Tollskýrslugerð innifalinn |
Nei |
Já |
| Brothættar sendingar |
Já* |
Nei |
| Staðfesting á móttöku (Proof of delivery) |
Já |
Já |
*Burðargjald vegna rúmfrekra og brothættra pakka til landa sem heimila móttöku á slíku er 50% hærra en almennt burðargjald
Afhending
Sendingin þín fer með fyrsta flugi til útlanda næsta virka dag eftir póstlagningu, ef póstlagt er á réttum tíma.
| Ákvörðunarland
| Hámarksþyngd kg
| Mesta lengd m (L)
| Hámarksstærð m (L+U)
| Flutningstími - virkir dagar |
| Austurríki |
30 |
1,5 |
3 |
3 |
| Belgía |
30 |
1,5 |
3 |
3 |
| Bretland |
30 |
1,5 |
3 |
3 |
| Danmörk* |
20 |
1,5 |
3 |
3-4 |
| Eistland |
30 |
1,05 |
2 |
3-4 |
| Finnland |
30 |
1,05 |
2 |
3-4 |
| Frakkland |
30 |
1,05 |
2 |
3-4 |
| Grikkland |
20 |
1,5 |
3 |
3 |
| Holland |
20 |
1,5 |
3 |
2-5 |
| Írland |
30 |
1,5 |
3 |
3 |
| Ítalía |
30 |
1,5 |
3 |
3-4 |
| Litháen |
30 |
1,05 |
2 |
3-4 |
| Lúxemborg |
30 |
1,5 |
3 |
3 |
| Noregur |
30 |
1,5 |
3 |
3 |
| Portúgal |
30 |
1,5 |
3 |
3-4 |
| Pólland |
20 |
1,5 |
3 |
3-6 |
| Slóvakía |
20 |
1,5 |
3 |
3 |
| Slóvenía |
30 |
1,5 |
3 |
3-6 |
| Spánn |
30 |
1,05 |
2 |
3 |
| Sviss |
30 |
1,5 |
3 |
3-4 |
| Svíþjóð* |
20 |
1,5 |
3 |
3-4 |
| Tékkland |
30 |
1,5 |
3 |
2-4 |
| Ungverjaland |
20 |
1,5 |
3 |
3 |
| Þýskaland |
30 |
1,05 |
2 |
3-6 |
*Pakki er ekki keyrður heim að dyrum ef móttakandi í Svíðþjóð og Danmörku þarf að greiða toll af sendingu nema viðkomandi sé í reikningsviðskiptum við Póstinn í DK og SE.
Gott að vita
Allri verslunarvöru sem send er með pósti til útlanda á að fylgja vörureikningur. Jafnframt þarf að skila inn útflutningsskýrslu á rafrænan hátt til tollayfirvalda.