Vöruúrval

Úrval af ritföngum, umbúðum til sendinga, gjafavara og ýmislegt gott í pakkann.

Vöruúrval hefur verið aukið til muna á undanförnum árum.

Á nýjum pósthúsum í rekstri Póstsins hefur verið lögð áhersla á aukna þjónustu við viðskiptavini. Njóttu þess að útbúa sendinguna þína í góðu umhverfi hjá okkur, við erum ávallt tilbúin að gefa góð ráð og aðstoða.

Aukið vöruúrval þar sem reynt er að koma til móts við þarfir viðskiptavina á hverjum stað hefur verið haft að leiðarljósi. Vertu velkominn á næsta pósthús til að skoða úrvalið, við höfum allt sem þarf í pakkann.

Ritföng

Ritföng, skrifstofuvörur og skemmtilegar vörur fyrir skólafólk eru víðast hvar í boði. Hver þarf ekki pappír í prentarann og umslög utan um bréfin?

Fyrir ferðamenn

Ferðamenn eru tíðir viðskiptavinir á pósthúsum, þegar þeir senda póstkort heim. Póstkort og frímerki eru fáanleg á pósthúsum í miklu úrvali og úrval frímerkjavara sem minjagripa hefur aukist til muna á undanförnum árum. Flöskuskeyti sem hægt er að senda í pósti, hver vill ekki fá það inn um lúguna?

Gott í pakkann

Ertu að senda pakka til vinar eða fjölskyldumeðlims erlendis? Á vel flestum pósthúsum er að finna töluvert úrval af íslensku sælgæti og það er fátt sem gleður Íslendinga erlendis eins og nammi að heiman. Súkkulaði og lakkrís, mmmm....

Gjafavara

Frá árinu 2006 hefur Pósturinn gefið út jólaprýði með myndefni jólafrímerkja hvers árs. Vinsældir hennar hafa verið vonum framar og nú er jólaprýði fáanleg bæði í settum (4 stk saman) eða stök og í tveimur litum, gyllt eða silfruð. Ef jólaprýðin sem þig vantar er ekki til, þá er hægt að kaupa hana á vefnum www.frimerki.is

MoneyGram

Á völdum pósthúsum er í boði þjónusta MoneyGram, peningasendinga til um 200 erlendra landa.

Umbúðir

Umbúðir utan um gjafir og umbúðir til sendinga eru víðast hvar í miklu úrvali. Gjafakort við flest tækifæri, fóðruð umslög, umbúðakassar og gjafakassar, þitt er valið. Sjá verð umbúðakassa.