Pósturinn

Árið 1776 gaf Kristján konungur Vll. út tilskipun um að komið yrði á póstferðum hér á landi. Tveimur árum seinna hófust reglulegar póstsiglingar milli Íslands og Danmerkur, ein ferð á ári. Fyrstu íslensku frímerkin voru gefin út 1873 en þá var póstmálum á Íslandi komið undir sérstaka stjórn og fyrstu pósthúsin sett á stofn. Árið 1935 var póst- og símarekstur sameinaður undir merki Pósts og síma.

Hlutafélagið Íslandspóstur hf. varð til þegar Pósti og síma var skipt upp í upphafi ársins 1998. Fyrirtækið er einn stærsti vinnuveitandi landsins með um 1000 starfsmenn. Það er ungt en byggir á sterkum rótum sem er samofin 230 ára sögu póstrekstrar á Íslandi.

Hlutverk Íslandspósts er að veita áreiðanlega þjónustu fyrir fyrirtæki og einstaklinga á sviði dreifingar-, samskipta- og flutningalausna, svo og á öðrum sviðum sem tengjast þeirri starfsemi. Framtíðarsýn Íslandspósts er að vera framsækið og öflugt fyrirtæki í bréfa- og vörudreifingu, með því að annast áreiðanlega og örugga þjónustu um allt land og allan heim, sem byggir á viðurkenndum gæðaviðmiðum. Jafnframt því mun Íslandspóstur vinna að arðbærum vexti með hagsmuni viðskiptavina, starfsmanna og eigenda að leiðarljósi.

Dreifikerfi póstsins nær til allra heimila og fyrirtækja landsins, þar af 99,5% fimm daga vikunnar. Pósthús og landpóstar veita viðskiptavinum alhliða póstþjónustu, óháð staðsetningu. Pósturinn starfar á alþjóðavísu með öðrum póstþjónustum og samstarfsfyrirtækjum um vörusendingar til og frá Íslandi og myndar þannig sterka tengingu við erlend dreifikerfi um allan heim.

Stjórnendur

Ingimundur Sigurpálsson, forstjóri

Ingimundur Sigurpálsson, forstjóri Íslandspósts.

Ingimundur hefur starfað sem forstjóri Íslandspósts frá því árið 2004. Hann hefur áratuga reynslu úr atvinnulífinu bæði í opinbera- og einkageiranum. Ingimundur gegnir og hefur gegnt fjölmörgum félags-, trúnaðar- og stjórnunarstörfum. Ingimundur er Viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands og stundaði framhaldsnám í hagrænni áætlanagerð og þróunarhagfræði við George Washington University í Washington D.C.

Andrés Magnússon, framkvæmdastjóri Starfsmannasviðs

Andrés Magnússon, framkvæmdastjóri starfsmannasviðs.

Andrés hefur starfað sem starfsmannastjóri Íslandspósts frá stofnun fyrirtækisins árið 1998. Áður starfaði hann sem starfsþróunarstjóri Pósts og síma og námsráðgjafi og sálfræðingur við Fjölbrautaskólann við Ármúla. Andrés er með B.A. próf í sálfræði frá Háskóla Íslands og M.A. próf í sálfræði frá University of Leicester í Englandi.

Anna Katrín Halldórsdóttir, framkvæmdastjóri Markaðs- og sölusviðs

Anna Katrín Halldórsdóttir, framkvæmdastjóri markaðs- og sölusviðs.

Anna Katrín hóf störf hjá Íslandspósti sem framkvæmdastjóri markaðs- og sölusviðs árið 2003. Anna Katrín er viðskiptafræðingur cand oecon, frá Háskóla Íslands og master í alþjóðaviðskiptum með áherslu á stefnumótun og stjórnun, cand merc, frá Copenhagen Business School.

Helga Sigríður Böðvarsdóttir, framkvæmdastjóri Fjármálasviðs

Helga Sigríður Böðvarsdóttir, framkvæmdastjóri fjármálasviðs.

Helga Sigríður hóf störf hjá Íslandspósti árið 2005 við ýmis verkefni á sviði reikningshalds félagsins. Hún tók við starfi framkvæmdastjóra fjármálasviðs 2007. Helga Sigríður er viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands og löggiltur endurskoðandi.

Hörður Jónsson, framkvæmdastjóri Pósthúsasviðs

Hörður Jónsson, framkvæmdastjóri pósthúsasviðs.

Áður en Hörður tók við starfi sem framkvæmdastjóri Pósthúsasviðs árið 2001 hafði hann gegnt ýmsum störfum hjá fyrirtækinu m.a. sem forstöðumaður þjónustustaða. Hörður hefur leitt þær umfangsmiklu breytingar sem orðið hafa á pósthúsa- og póstafgreiðsluneti fyrirtækisins á undanförnum árum. Hörður er viðskiptafræðingur, cand oecon, frá Háskóla Íslands.

Tryggvi Þorsteinsson, framkvæmdastjóri Flutningasviðs

Tryggvi Þorsteinsson, framkvæmdastjóri framkvæmdasviðs.

Tryggvi hefur starfað sem framkvæmdastjóri framkvæmdasviðs Íslandspósts frá árinu 2001. Hann stýrir m.a. dreifingu, útkeyrslu, flutningum og fasteignadeild fyrirtækisins. Tryggvi hefur gegnt ýmsum störfum hjá fyrirtækinu og m.a. starfað sem verkfræðingur í hagræðingardeild, umdæmissérfræðingur og forstöðumaður flutningamála. Tryggvi er með B.S. próf í vélaverkfræði frá Háskóla Íslands og M.S. próf í verkfræði frá DTH í Danmörku.