28.06.2012

A eða B innanlands
Þann 1. júlí 2012 tók Pósturinn upp nýjungar í þjónustu með auknu vöruframboði.
Viðskiptavinir geta valið um tvo kosti, A-póst eða B-póst þegar send eru bréf í lægsta þyngdarflokki, 0-50 gr. A-póstur fer í dreifingu daginn eftir póstlagningu en B-pósti er dreift innan þriggja daga. Verð á A-pósti er 120 kr. en verð á B- pósti 103 kr. Sjá verð á bréfum.
Einnig er í boði sérstök verðskrá fyrir fyrirtæki og einstaklinga sem senda mikið magn af pósti í einu, eða svokallaðan A magnpóst og B magnpóst. Hér er hægt að finna nánari skilyrði og verð á magnpósti. Með þessari nýju þjónustu gefst fyrirtækjum og einstaklingum kostur á að ná niður kostnaði við póstsendingar sem sendar eru í miklu magni. Helstu breytingar á verðskránni fyrir magnpóst eru stigvaxandi afsláttur eftir magni hvert sinn og svo viðbótarafsláttur ef heildarmagn bréfa fer yfir 20.000 stk. á mánuði.
Bréfum innan einkaréttar (0-50gr) hefur fækkað um 38% frá árinu 2000 og spáð er áframhaldandi magnminnkun og er áætlað að bréfapósti muni fækka um allt að 16% til viðbótar fram til ársins 2015. Jafnhliða því er vert að hafa í huga að íbúðum á landinu öllu hefur fjölgað um 26% á sama tíma og reglur um bréfadreifingu kveða á um dreifingu í öll hús á landinu alla virka daga ársins og nær sú þjónusta til 99,8% heimila og fyrirtækja á landinu. Þessi breyting á verðum og vöruframboði er því nauðsynleg til að standa undir þeirri magnminnkun sem hefur verið og er fyrirsjáanleg áfram.
Sem fyrr verður almennt burðargjald fyrir bréf hér á landi það lægsta sem þekkist meðal Norðurlandanna og með því lægsta innan evrópska efnahagssvæðisins.