23.03.2012

Íslensk hönnun á frímerki og HönnunarMars
Fatahönnun er þema þriðju frímerkjaraðarinnar sem tileinkuð er íslenskri nútíma hönnun.
Skór og sokkabuxur eru hönnuð af Hugrúnu Dögg Árnadóttur og Magna Þorsteinssyni hjá fyrirtækinu KronKron. Skólínur þeirra hafa vakið athygli fyrir frumlega hönnun. Í umsögnum segir að rómantík og kátína einkenni hönnunina þar sem litir og sköpunargleði ráði ferðinni.
Kjóllinn á 100g frímerkinu er hannaður af Steinunni Sigurðardóttur. Listsköpun hennar er sögð byggja á löngu samstarfi við marga þekkta samtímahönnuði. Í umsögn segir að hönnun hennar eigi sér rætur í þjóðlegum hefðum prjónalistarinnar.
Hneppt peysa úr íslenskri ull er hönnuð af Bergþóru Guðnadóttur hjá hönnunarfyrirtækinu Farmers Market. Í kynningu fyrirtækisins segir að náttúruleg hráefni sé leiðarstef í hönnun hennar og innblástur sóttur í íslenska arfleifð þar sem menn og dýr lifðu í návígi við náttúruöflin.
Fatnaður frá 66°NORÐUR hefur vakið athygli fyrir nýstárlega hönnun úr hágæða efnum. Fyrirtækið hefur hlotið fjölda verðlauna fyrir hönnun og markaðsstarf. Fyrirtækið framleiðir meðal annars fatnað á lögreglu, slökkvilið og björgunarsveitarmenn.
Hönnuður: Örn Smári Gíslason
Verðgildi: 50g innanlands (97 kr.), 100g innanlands (110 kr.), 50g til Evrópu (175 kr.), 50g utan Evrópu (230 kr.).
GRÆNIR ORKUGJAFAR

Ísland hefur mikla sérstöðu þegar kemur að orkumálum. Hér er notuð meiri orka af hverjum íbúa en þekkist annarsstaðar. Hlutfall endurnýjanlegra orkugjafa er einnig óvenju hátt. Árið 2008 kom rúmlega 80% af heildar orkunotkun þjóðarinnar frá innlendum og endurnýjanlegum orkulindum.
Jarðhitinn hefur að mestu verið nýttur til upphitunar á um 90% heimila á landinu. Mikil orka felst í vatnsföllum og á Íslandi eru um 37 vatnsaflsvirkjanir og um 200 smávirkjanir. Landsvirkjun var stofnuð vegna álversframkvæmda og útflutningur á áli vegur rúmlega 40% af heildarútflutningi.
Á Suðurlandi eru öflug lághitasvæði sem nýtt eru bæði til húshitunar og grænmetisræktunar. Þar er um að ræða helming virkjaðs vatnsafls á landinu og um 70% virkjaðs gufuafls. Með notkun raforku hefur garðyrkjubændum tekist að anna innlendri eftirspurn eftir tómötum og agúrkum. Mikil framþróun hefur átt sér stað í garðyrkju á undanförnum árum, sem hefur m.a. orðið til þess að hægt hefur verið að auka framleiðslu á tómötum um 200% og agúrkum um helming á tíu ára tímabili.
Hönnuður: Hlynur Ólafsson
Verðgildi: 4 x 50g innanlands (388 kr.), 4 x 50g til Evrópu (700 kr.).
NORÐURLÖNDIN VIÐ HAFIÐ II

Þema Norðurlandafrímerkjanna 2012 er leitar-og björgunarþjónusta.
Öldum saman hafa íslenskir sjómenn lifað með hættunni á sjónum og margir týnt lífi í harðri baráttu við öfl náttúrunnar. Landhelgisgæsla Íslands og Slysavarnarfélagið Landsbjörg hafa nána samvinnu um björgunaraðgerðir þegar háski steðjar að fólki á sjó eða landi.
Fagmennska íslenskra björgunarsveita hefur vakið athygli um heim allan. Landhelgisgæslan gegnir lykilhlutverki við björgun á sjó. Þar eru þyrlurnar öflugar ásamt skipum og flugvélum gæslunnar. Varðskip Landhelgisgæslunnar eru Ægir, Týr og Þór. Gæslan hefur einnig yfir að ráða tveimur flugvélum og tveimur þyrlum.
Á frímerkinu er þess minnst þegar TF LÍF, þyrla Landhelgisgæslunnar, bjargaði sextán manna áhöfn fjölveiðiskipsins Baldvins Þorsteinssonar EA 10 þann 9. mars 2004. Skipið strandaði í Skarðsfjöru á Suðurlandi eftir að það fékk nótina í skrúfuna við loðnuveiðar skammt undan landi. Björgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar aðstoðuðu við björgunina frá landi. Við gerð frímerkisins var stuðst við verðlaunaljósmynd Jónasar Erlendsson fréttaritara.
Hönnuður: Hjörvar Harðarson/ Jónas Erlendsson (ljósmynd)
Verðgildi: 250g innanlands (155 kr.).
Norðulandaþjóðirnar gefa út að venju sameiginlega gjafamöppu með öllum átta smáörkunum sem gefnar eru út í þessari frímerkjaröð. Nánari upplýsingar um norræna frímerkjasamvinnu má finna á topoftheworld.nu.
PÓSTURINN TEKUR ÞÁTT Í HÖNNUNARMARS 2012

HönnunarMars fer fram í fjórða skiptið, dagana 22. - 25. mars 2012.
Á hátíðinni bjóða hönnuðir almenningi að kynna sér heim hönnunar með áhugaverðum sýningum og ýmsum viðburðum.
Pósturinn tekur þátt í hátíðinni í fyrsta sinn en meginþema þetta árið er samstarf sem vísar til mikilvægi þess að sækja sér þekkingu úr hinum ýmsu áttum og deila sérþekkingu á milli fagsviða.
Frímerkjasala Póstins hefur undanfarin ár gefið út frímerkjaröð með yfirheitinu íslensk hönnun. Árið 2008 komu út frímerki um íslenska iðnhönnun, árið 2010 komu út frímerki tileinkuð íslenskri húsgagnahönnun og þann 22. mars næst komandi kemur út þriðja útgáfan í þessari seríu sem er tileinkuð íslenskri fatahönnun.
Fyrir tilstuðlan Hönnunarmiðstöðvar hafa Pósturinn, hönnuður frímerkjanna og fatahönnuðirnir tekið höndum saman og munu setja upp sýningu á Hönnunarmars þetta árið. Hönnun eftir KronKron, Steinunni, Farmers Market og 66°Norður verður til sýnis ásamt frímerkjunum Íslensk hönnun III - fatahönnun (568A-D) eftir grafíska hönnuðinn Örn Smára Gíslason. Sýningin hefst 22.mars og verður í gluggunum á Laugavegi 95.
Sjá nánar: www.designmarch.is