01.02.2012

style="padding:3px"

Póstmótið í sjötta sinn

Um nýliðna helgi var Póstmótið í körfubolta haldið í fimmta sinn. Breiðablik hefur haldið þetta körfuboltamót síðastliðin þrettán ár en það var árið 2007 sem Pósturinn byrjaði að styrkja mótið.

Í kringum 600 krakkar frá 14 félagsliðum sem mynduðu 92 lið tóku þátt í mótinu. Þátttakendur eru bæði stelpur og strákar á aldrinum 6-11 ára.  Markmið mótsins er að krakkarnir kynnist leiknum, öðrum liðum og fyrst og fremst að þau skemmti sér saman.

Allir keppendur fengu verðlaunapening að leik loknum og gátu krakkarnir fengið að senda póstkort til vina og ættingja sér að kostnaðarlausu. Einnig fengu allir keppendur buff (skjólu) sem merkt var Póstmótinu.