Fyrirtækjum og einstaklingum býðst að afþakka fjölpóst. Fylltu út þessa umsókn. Við sendum þér límmiða til að líma við póstlúguna/ póstkassann sem að á stendur: „Engan fjölpóst - Takk!“. Sá límmiði er virtur við dreifingu á fjölpósti sem Pósturinn dreifir. Í þeim tilfellum þegar sækja á um límmiða fyrir fjölbýlishús sem eru með eina sameiginlega póstlúgu þá þurfa íbúar að sækja um á kennitölu húsfélagsins.
Límmiðinn á að berast þér innan tveggja vikna frá því að Pósturinn fær umsókn frá þér.
Sé óskað eftir að fá fjölpóst aftur borinn út, verður að fylla út þessa umsókn og fjarlægja límmiðann "Engan fjölpóst - Takk!" af póstlúgunni/ póstkassanum. Þegar þú flytur þá þarftu að sækja um að nýju ef þú vilt ekki fá fjölpóst á nýja heimilisfangið. Mundu eftir að fjarlægja límmiðann af þeim stað sem þú flytur frá. Í einstaka tilfellum óskar sendandi eftir því að fjölpósti sé dreift inn um allar lúgur þrátt fyrir að þær séu merktar "Engan fjölpóst - Takk!". Það á oftast við þær tilkynningar sem að sendandi telur að sé almenn tilkynning sem þarf að ná til allra viðtakenda á ákveðnum svæðum.
Innsláttarsvæði merkt með * verður að fylla út til að geta sent umsóknina.