Ertu að flytja?
Þegar þú flytur þarftu að tilkynna heimilsfangsbreytinguna, fyrir þig og fjölskyldu þína. Til að þú fáir póstinn þinn, sem stílaður er á gamla heimilisfangið, borinn út á nýja heimilisfanginu þarf að greiða þjónustugjald fyrir það tímabil sem þú telur að þörf verði á að fá póstinn áframsendann. Áframsendingar gilda aðeins fyrir bréf, bæði innanlands og til útlanda.
Mælt er með lágmarkstímabilinu, 3 mánuðum, sem gefur þér þá tíma til að tilkynna öðrum fyrirtækjum og stofnunum um flutninginn.
Hægt er að tilkynna flutning án þess að greiða þjónustugjald en þá mun áframsending ekki taka gildi, þá verða þau bréf sem stíluð eru á gamla heimilisfangið endursend til sendanda.
Tilkynna flutning
Fylltu út viðeigandi form, eftir því hvort þú ert að flytja innanlands eða erlendis.
Hverju þarf að huga að á nýja staðnum?
Góðar merkingar á bréfalúgum og póstkössum létta bréfberum og bílstjórum störfin og pósturinn kemst fyrr í hendur viðtakenda. Hafir þú afþakkað fjölpóst á gamla heimilisfanginu þá er mikilvægt að muna að taka niður merkingar þar. Viljir þú afþakka fjölpóst á nýja heimilisfangið, þarf að sækja um aftur með því að fylla út umsókn um engan fjölpóst.