Biðpóstur
Við geymum fyrir þig póstinn meðan þú ferð í frí, á því pósthúsi sem þú vilt.
Bréfapóstur bíður eftir þér á pósthúsi að eigin vali.
Biðpóstur er þjónusta fyrir þá sem ekki eru heima hjá sér tímabundið, bréfapóstur er geymdur á umbeðnu pósthúsi og borinn út þegar þú kemur heim. Þú velur hversu lengi á að geyma póstinn, greiða þarf þjónustugjald fyrir valið tímabil.
Að þeim tíma loknum eru bréfin borin út heim til þín, næsta virka dag.
Þegar biðpóstur er pantaður yfir lengra tímabil en 60 daga, skal viðtakandi sjá til þess að pósturinn sé reglulega sóttur á pósthúsið svo ekki komi til óþæginda af því að póstur safnist upp. Annar aðili má sækja póstinn gegn skriflegu umboði þess sem bréfin eru stíluð á. Athugið að skráðar sendingar eins og ábyrgðarbréf og pakkar eru endursendar eftir 30 daga.
Pósturinn býður einnig upp á pósthólf sem eru til leigu á ársgrundvelli en sækja þarf einnig póstinn sinn í hólfið á hámark 60 daga fresti svo að hann verði ekki endursendur.
Þú ferð í fríið og við látum póstinn þinn bíða þar til þú kemur heim.
Panta biðpóst