Tímabundin áframsending
Ef þú vilt fá bréfapóstinn sendan á annað heimilisfang þarf að greiða þjónustugjald.
Áframsending gildir aðeins fyrir almenn bréf.
Tímabundin áframsending virkar þannig að bréf sem stíluð eru á núverandi heimilisfang eru áframsend tímabundið á það heimilisfang sem þú óskar eftir og borin þar út.
Tímabundin áframsending er möguleg á heimilisföng bæði innanlands og erlendis. Þetta er því kjörin þjónusta fyrir þá sem t.d. starfa tímabundið erlendis.
Það er mikilvægt að þú sért merktur á því heimilisfangi þangað sem pósturinn er áframsendur.
Til að tímabundin áframsending taki gildi þarf að greiða þjónustugjald fyrir það tímabil sem óskað er eftir. Áframsendingin gildir aðeins fyrir almenn bréf. Þegar tímabil áframsendingarinnar er liðið er, næsta virka dag, pósturinn aftur borinn út samkvæmt áritun.
Panta áframsendingu
Fylltu út viðeigandi form, eftir því hvort þú ert að panta áframsendingu innanlands eða erlendis.