Vöruhýsing
Pósturinn geymir, pakkar og sendir, þú selur.
Vöruhýsing hentar t.d. heildverslunum og netverslunum.
Með því að nýta sér vöruhýsingu geta fyrirtæki úthýst lagerhaldi og dreifingu og þannig lækkað kostnað.
Fyrir hverja?
Vöruhýsing hentar vel smærri og meðalstórum fyrirtækjum sem nýta sér tengslamarkaðssetningu, netverslunum, heildverslunum og öðrum fyrirtækjum sem vilja einbeita sér að sölunni og láta aðra um hýsingu og dreifingu.
Vöruhýsing sér um:
- móttöku
- gerð innflutnings- og útflutningsskjala
- hýsingu á lager
- afgreiðslu pantana
- pökkun og afhendingu til viðskiptavina innanlands sem utan
Þú sérð um að selja
Gáttin
Þjónustuvefur fyrirtækja, Gáttin, auðveldar alla yfirsýn og gerir utanumhaldið einfalt. Í Gáttinni er auðvelt að:
- Stofna ný vörunúmer
- Innskrá vörur á lager
- Skoða lagerstöðu
- Skrá vörur út af lager, til viðtakenda
Hafðu samband
Hvort sem að þitt fyrirtæki er í innflutningi eða útflutningi þá hefur Pósturinn lausnina.
Til að gerast viðskiptavinur í vöruhýsingu, hafðu samband við Fyrirtækjasölu í síma 580 1090 eða á sala@postur.is.