Vörudreifing
Hagkvæm flutningaþjónusta við vörudreifingu er hluti af fyrirtækjalausnum Póstsins.
Vörudreifing frá fyrirtækjum til einstaklinga.
Njóta viðskiptavinir þínir þess besta?
Vörudreifing er hluti af fyrirtækjalausnum Póstsins. Vörudreifing er hagkvæm flutningaþjónusta sem þjónustar fyrirtæki við að koma vörum til viðskiptavina sinna, hvar sem er á landinu. Við erum með eitt stærsta og skilvirkasta dreifikerfi landsins og höfum öflugan bílaflota til umráða til að hægt sé að tryggja hraða og örugga afhendingu.
Dreifikerfi Póstsins er það víðtækasta á landinu og dreifir sendingum til 99% heimila og fyrirtækja fimm daga vikunnar.
- 120 þúsund heimili
- 10 þúsund fyrirtæki
- Dreifing 5 sinnum í viku
- 74 afgreiðslustaðir um land allt
Heildverslun, netverslun, póstverslun...
Hvað hentar hverjum sendanda best er mismunandi eftir starfsemi og þeim vörum sem verið er að dreifa. Þjónustu vörudreifingar er vel hægt að sníða sérstaklega að ýmsum tegundum fyrirtækja, láttu Póstinn koma því til skila. Stórir, léttir, þungir, breiðir... Láttu Póstinn koma því til skila.
Þitt er valið
Pakkar innanlands
Grunnþjónustua vörudreifingar er afhendingarmáti pakka.
- Afhent á næsta pósthúsi – Pakki á pósthús
- Afhent viðtakanda – Pakki heim
Pakkar innanlands
Sendlaþjónusta
Þarftu að koma sendingu strax til skila? Pósturinn býður fyrirtækjum á höfuðborgarsvæðinu og á Akureyri þjónustu sendla, alla virka daga frá kl. 09:00 - 17:00. Sendill sækir sendingu, allt að 30 kg, til fyrirtækis og ekur henni strax til móttakanda innan höfuðborgarsvæðisins, fyrirtækis eða einstaklinga.
Markmið okkar er að afhenda innan 90 mínútna frá því að þjónustan er pöntuð.
Sendlaþjónusta
Viðbótarþjónustur
Kaupsamningur
Þegar þú ert að selja vöru eða þjónustu gæti þurft að undirrita kaupsamning. Hægt er að ganga frá því við afhendingu og afrit eru svo send í pósti. Gera þarf sérsamning fyrir þessa þjónustu.
Kaupsamningur
Póstkröfur
Viðskipti byggjast á trausti. Seljandi getur sent vörur í póstkröfu og við sjáum um að afhenda kaupanda þær og innheimta greiðsluna. Þetta gerðu menn fyrir daga Internetsins, nú gerir internetið það þægilegra að senda póstkröfur.
Póstkröfur
Póststoð
Fyrir fyrirtæki sem senda oft og mikið er tilvalið að nota Póststoð. Frír hugbúnaður, sem hægt er að tengja við sölukerfi. Póststoð flýtir fyrir, límmiðar með sendingarupplýsingum prentast út og upplýsingarnar sendast rafrænt í okkar tölvukerfi.
Póststoð
Til útlanda
Pakkar til útlanda
Pósturinn starfar á alþjóðavísu með öðrum póstþjónustum og samstarfsfyrirtækjum um vörusendingar til og frá Íslandi og myndar þannig sterka tengingu við erlend dreifikerfi um allan heim.
Til útlanda
Viðskiptapakkar til útlanda
Viðskiptapakka er hægt að senda til þeirra landa sem hafa gert með sér samkomulag um forgangsmeðferð slíkra sendinga. Ákvörðunarlöndin eru öll ESB lönd fyrir utan Búlgaríu, Kýpur, Lettland, Möltu og Rúmeníu. Auk þess Lúxemborg, Noregur og Sviss.
Viðskiptapakkar til útlanda