Sendlaþjónusta
Pantaðu sendil í síma 580 1100 eða smelltu á panta sendil.
Heimkaup sendir heim innan 90 mín er loforð byggt á sendlaþjónustu.
Pantaðu sendil
Þarftu að koma sendingu strax til skila?
Pósturinn býður fyrirtækjum á höfuðborgarsvæðinu (nema póstnúmer 116, 271 og 276) og á Akureyri þjónustu sendla til að bregðast við kröfum markaðarins um meiri hraða og sveigjanleika. Sendill sækir sendingu, allt að 30 kg, til fyrirtækis og ekur henni strax til móttakanda innan höfuðborgarsvæðisins, fyrirtækis eða einstaklinga.
Stækkaðu pakkann - Heimkaup
Hvað er hægt að senda?
Bæði er hægt að senda bréf og pakka, allt að 30 kg. Hver sendill getur sótt nokkar sendingar í einu og farið með á fleiri en einn stað.
-
Alla virka daga frá kl. 09:00 - 17:00
-
Sending er sótt til sendanda
-
Afhent strax, hjá fyrirtækjum og einstaklingum
Afhending
Markmið okkar er að frá því að sendill er pantaður líði innan við 90 mín þangað til hún er komin í hendur viðtakanda, sama hvort um er að ræða fyrirtæki eða einstakling.
Gott að vita
Sendlaþjónusta er einnig í boði fyrir einstaklinga, heitir þá hraðpóstur. Ef sendingar eru fyrirferðarmiklar eða rúmfrekar er mikilvægt að taka það fram þegar sendill er pantaður, svo hægt sé að senda rétta stærð af bíl.