Auglýsingapóstur

Hluti af fyrirtækjalausnum okkar er að bjóða úrval af auglýsingapósti. Sendu markhópnum þínum skýr skilaboð með því að velja þá gerð af auglýsingapósti sem fellur best að þeirri vöru eða þjónustu sem þú býður.

Leiðin liggur inn um lúguna.

Askjan

Í Öskjuna söfnum við saman sýnishornum og sendum á valinn markhóp. Dæmi um Öskjur eru BarnaAskjan, Golfaskjan og HeilsuAskjan.

Askjan

Fjölpóstur

Í hverri viku fá viðtakendur tilboð, tilkynningar og auglýsingar frá sendendum fjölpósts. Sendandi velur þau póstnúmer þar sem dreifingin á að fara fram, allt frá bara einu í næsta nágrenni, um ákveðið svæði eða um allt land.

Fjölpóstur

Markhópagerð

Fyrirtækjasala getur gert fyrir þig markhópalista svo að skilaboðin sem að þú sendir komist örugglega í réttar hendur. Ertu að leita að nýjum viðskiptavinum eða viltu vera í betra sambandi við núverandi viðskiptavini?

Markhópagerð

Markpóstur

Áritaður með nöfnum og heimilsföngum gerir markpóst að þeim persónulega auglýsingamiðli sem hann er. Viðtakandinn er þannig í beinum samskiptum við sendandann. Ótakmarkaðir möguleikar, því ef það sem þú vilt senda kemst ekki inn um lúgu, þá afhendum við líka pakka annað hvort á pósthús eða heim að dyrum.

Markpóstur

Svarsendingar

Fyrir fyrirtæki sem vilja tryggja svörun frá viðskiptavinum sínum þá velja þau svarsendingu, þannig að viðtakandi verður sendandi en má láta svarið ófrímerkt í póst.Endurgjöf frá viðskiptavinum getur verið ómetanlegt tæki í rekstri fyrirtækja, fáðu svarið sem þú ert að leita að sent til þín í pósti.

Svarsendingar

Hafðu samband við fyrirtækjasölu Póstsins í síma 580 1090 eða á sala@postur.is