Senda kort

Við viljum gera þér auðveldara að senda kort. Nokkar leiðir eru í boði, hvort sem þú ert að senda stakt kort eða mörg.

Boðskort á leið inn um lúgu.

Þarftu að senda eitt kort eða mörg? Viltu skrifa utan á eða viltu að við áritum og dreifum? Veldu leiðina sem þér hentar best.

Samúðarkort

Þú getur sent samúðarkort þegar við á með því að hringja í síma 1446 eða panta á vefnum. Samúðarkortin er hægt að senda með frjálsum framlögum í Minningarsjóð Landspítala háskólasjúkrahús.


Kortavefur

Á Kortavefnum eru mismunandi gerðir korta í boði, límmiðar og umslög. Kortavefurinn tengist Póstlistanum þínum til að sækja nöfn viðtakenda og við sjáum um að prenta, pakka og senda. Einfalt og þægilegt og frímerki eru innifalin í verði.


Kortin mín

Settu þína eigin mynd á kort sem eru 21 x 10 cm og fáðu bunkann sendan heim. Þú ræður hvort frímerki fylgja með eða ekki en umslög eru innifalin í verði. Þú getur þá handskrifað utan á, áður en þú póstleggur. Fyrirtak fyrir fermingarboðskortin.

Kortin mín