Póstlistinn minn

Þú átt alltaf rétt heimilisföng þegar þú sendir boðskort eða jólakort.

Póstlistinn minn er þér aðgengilegur hvar og hvenær sem þér hentar.

Póstlistinn minn er þjónusta þar sem þú getur búið til þinn eigin póstlista þér að kostnaðarlausu. Þú getur skráð þig inn og byrjað strax að búa til póstlista, eins marga og þú vilt.

Kostir póstlista:

  • Þú getur átt marga lista, einn fyrir jólakort og annan fyrir boðskort
  • Þú getur leitað í póstfangagrunni eftir nafni eða kennitölu
  • Þú getur líka slegið inn upplýsingar ef þú vilt frekar t.d. fyrir erlend heimilisföng
  • Þú getur hakað við að láta Póstinn uppfæra, þá áttu alltaf réttan lista
  • Þú getur valið að breyta viðtakanda hvenær sem er t.d. til að geyma líka netfang
  • Þú getur valið viðtakendur af póstlistanum þínum þegar þú hannar og sendir kort á Kortavefnum.

Þetta er bara þægilegt, prófaðu núna.


Póstlistinn minn og Kortavefurinn

Eftir að þú hefur stofnað Póstlistann minn, getur þú farið á Kortavefinn og sótt nöfnin sem eru á Póstlistanum. Á Kortavefnum er hægt að panta límmiða, árituð umslög og nokkrar stærðir af kortum.

Kort eru borin út beint til viðtakenda, en límmiðar og umslög eru ásamt frímerkjum send heim til kaupanda. Kortavefurinn ásamt póstlistanum sparar þannig bæði tíma og fyrirhöfn.