Pakkar til útlanda

Fylla þarf út útflutningsskýrslu fyrir allar vörur sem sendar eru úr landi til viðgerðar.

Útflutningsskýrsla þarf að fylgja með.

Þegar þú sendir pakka til útlanda eru þeir skráðir og hver pakki fær viðtökunúmer. Skráning tryggir rekjanleika og staðfestingu á móttöku. Pósturinn býður upp á tvær leiðir fyrir pakka til útlanda, flug- eða sjópóst. Við mælum með því að verðmætari sendingar séu tryggðar með pósttryggingu, en lágmarkstrygging er innifalin.

Póstlagning

Þú getur skráð pakka til útlanda á vefnum. Skráning flýtir fyrir vinnslu þar sem upplýsingar berast rafrænt beint í tölvukerfi Póstsins. Skrá sendingu. Hægt er að póstleggja á næsta pósthúsi og í Fyrirtækjaþjónustu.

Hvað er hægt að senda?

Stærðarmörk pakka eru ákvörðuð af hverju móttökulandi fyrir sig og flutningstími er líka breytilegur. Skoðaðu áætlaðan flutningstíma, stærðarmörk og viðbótarþjónustu til útlanda. Bæði er að finna upplýsingar um flugpóst og sjópóst ásamt þeirri viðbótarþjónustu sem hvert land býður. Nánari upplýsingar um þjónustu í hverju ákvörðunarlandi má sjá með því að smella á nafn landsins. Upplýsingarnar eru fengnar úr gagnagrunni UPU, Alþjóðapóstsambandsins, og getur Pósturinn ekki ábyrgst að þær séu réttar. Þá eru einnig tilvik þar sem upplýsingar liggja ekki fyrir.

Útflutningsskýrsla

Öllum vörum sem fluttar eru frá landinu til viðgerðar eða sölu þarf að fylgja útflutningsskýrsla.

Afhending

Afhending pakka til útlanda ræðst af flutningsmáta (flugpóstur/sjópóstur) og ákvörðunarlandi pakkans. Skoðaðu áætlaðan flutningstíma, stærðarmörk og viðbótarþjónustu til útlanda.

Gott að vita

Pakkar í flugpósti fara með fyrsta flugi til útlanda og er komið til viðtakanda í ákvörðunarlandi. Að senda pakka með sjópósti tekur lengri tíma en að senda pakka með flugi en á móti kemur að burðargjald er lægra.