Pakkar innanlands

Pakka innanlands er hægt að senda á pósthús eða heim að dyrum.

Sendu pakka innanlands á pósthús eða heim að dyrum.

Þú getur sent stóra, litla, langa, breiða eða mjóa pakka með Póstinum. Hver pakki fær viðtökunúmer þannig að hægt er að finna sendingu, hvar hún er stödd á hverjum tíma. Við mælum með því að verðmætari sendingar séu tryggðar með pósttryggingu, en lágmarkstrygging er innifalin.

Póstlagning

Þú getur skráð sendingu á vefnum áður en komið er með hann á pósthús eða hann sóttur af Fyrirtækjaþjónustu. Skráning flýtir fyrir vinnslu þar sem upplýsingar berast rafrænt beint í tölvukerfi Póstsins.

Hvað er hægt að senda?

Lágmarksstærð: er umslag: 90 x 140 mm. Rúmmálsþyngd skal notuð þegar hún er meiri en raunþyngd sendingar. Sé sending rúmfrek/illmælanleg er innheimt sérstakt gjald. Já, það er hægt að senda reiðhjól í pósti. Ef þú ert með stóra sendingu, hafðu samband við Fyrirtækjasölu og fáðu tilboð.

Viðbótarþjónusta pakka innanlands

Til viðbótarþjónustu pakka innanlands teljast m.a. brothætt, forgangsþjónusta þar sem pökkum er ekið til viðtakenda á þeim stöðum þar sem annars er ekki heimkeyrsla, sérferðir landpósta með þyngri sendingar og viðtakandi greiðir burðargjald. Kynntu þér viðbótarþjónustuna til að tryggja að sendingar fái viðeigandi meðhöndlun. Sjá nánar um viðbótarþjónustu pakka innanlands.

Afhending

Pakki pósthús

Pakki pósthús er tilkynntur viðtakanda, annað hvort með SMS tilkynningu eða með tilkynningu sem er borin út daginn eftir komu pakka á pósthús og getur viðtakandi þá nálgast pakkann. Pakki pósthús, er afhentur á pósthúsi viðtakanda við framvísun tilkynningar (prentuð eða SMS) og skilríkja með mynd. Viðtakandi getur einnig veitt öðrum aðila skriflegt umboð til að taka á móti pakkanum á pósthúsi fyrir sína hönd. Pakki pósthús er auðkenndur með rauðum límmiða. Pakki pósthús er hægt að fá á öll pósthús og afgreiðslustaði Póstsins. Ef sending er merkt með fylgibréfi eða pakkanúmeri en ekki með límmiða til að auðkenna afhendingarmáta, er sendingin skilgreind sem Pakki pósthús.

Pakki heim

Pakki heim er keyrður út til einstaklinga frá mánudegi til föstudags klukkan 17:00 - 22:00 og til fyrirtækja frá mánudegi til föstudags klukkan 09:00 - 17:00 þar sem útkeyrsla er. Ef póstlagt er fyrir kl. 16:30 verður pakkinn keyrður út 1.2. eða 3 dag eftir póstlagningu. Gerð er ein tilraun til afhendingar og sé hún árangurslaus er skilin eftir tilkynning. Í þeim tilfellum má nálgast pakkann á viðkomandi pósthúsi næsta virka dag gegn framvísun tilkynningarinnar. Pakki heim er auðkenndur með grænum límmiða. Pakki heim er í boði í þeim póstnúmerum þar sem heimkeyrsla er.

Pakki samdægurs

Pakki samdægurs er aðeins í boði fyrir fyrirtæki á höfuðborgarsvæðinu, sem eru í fyrirtækjaþjónustu Póstsins og nota hugbúnaðinn Póststoð til að merkja pakkana. Pakki samdægurs er keyrður út til fyrirtækja fyrir klukkan 17:00 og til einstaklinga milli klukkan 17:00 - 22:00 sama dag.

SMS tilkynning

Skrái sendandi GSM númer viðtakanda pakka innanlands verður honum send SMS tilkynning áður en útkeyrsla er reynd og viðtakandi getur gert viðeigandi ráðstafanir.

Gott að vita

Landpóstar sjá um 3 - 5 daga dreifingu til fáeinna þéttbýla og allra dreifðra byggða og sveita. Þar sem landpóstar sinna dreifingu, þá skal keyra öllum skráðum sendingum léttari en 30 kg. og/eða 0,125 m3 heim til viðtakanda. Ef póstur berst sem er umfram þessi þyngdar/stærðarmörk býðst viðskiptavinum að sækja sendinguna eða fá hana keyrða heim gegn gjaldi.

Verð

Verð pakka finnur þú hér, bæði innanlands, til útlanda og verð fyrir viðbótarþjónustur.