Skrá sendingu
Skráðu sendinguna og prentaðu út fylgibréf. Komdu svo með sendinguna á pósthús, eða við komum og sækjum hana.
Skráðu sendinguna, það flýtir fyrir.
Viðskiptavinum gefst kostur á að skrá sendingu rafrænt og prenta út nauðsynleg fylgibréf. Þetta flýtir fyrir póstlagningu þar sem upplýsingarnar berast beint í tölvukerfi Póstsins.
Hvað þarftu að gera?
- Fylla út upplýsingar um sendanda og viðtakanda
- Velja afhendingarmáta
- Fylla út stærð, þyngd og fjölda pakka
- Velja viðbótarþjónustu s.s. brothætt
- Fylla út innihald, innihaldslýsingu og tollvirði fyrir erlendar sendingar
- Staðfesta og prenta fylgibréf
Þú einfaldlega fylgir fimm skrefa ferli, festir fylgibréfið á sendinguna og póstleggur.
Betri upplýsingar
Betri upplýsingar skila sér í betri póstþjónustu.
- Þú gefur upp netfang og færð senda kvittun í tölvupósti
- Settu gsm símanúmer viðtakanda innanlands með, hann fær þá senda SMS tilkynningu þegar pakkinn er á leiðinni til hans
- Nákvæmar innihaldslýsingar og tollvirði á sendingum til útlanda flýta fyrir tollafgreiðslu í móttökulandi