SMS Frímerki

Ef þú átt ekki frímerki, geturðu sent SMS og fengið fimm stafa kóða sem gildir fyrir þann fjölda frímerkja sem þú óskar.

SMS frímerki.

Áttu ekki frímerki og vantar þau núna? Notaðu farsímann til að senda bréf.

Nú getur þú keypt burðargjöld með því að senda SMS skilaboð úr símanum.

Sendu SMS á númerið 1900, í því þarf að vera F og fjöldi þeirra frímerkja sem þú vilt kaupa. Þú færð til baka fimm (5) stafa númer sem gildir sem frímerki á bréf innanlands undir 50 gr. Hvert númer gildir í sjö daga, frá því SMS er sent, þar til bréf er póstlagt.

Númerið er skrifað efst í hægra horn umslags, eins og ef um límt frímerki væri að ræða.

Dæmi:

  • F 1 gildir fyrir 1 bréf
  • F 21 gildir fyrir 21 bréf
  • F 50 gildir fyrir 50 bréf.

Verð á SMS Frímerkjum er það sama og á hefðbundnum frímerkjum. Upphæðin gjaldfærist á símanúmerið sem sent er úr.

Hægt er að kaupa SMS Frímerki á tvo vegu, með því að senda SMS úr öllum farsímum sem bjóða upp á að senda SMS eða í gegnum snjallsímaforrit Póstsins.

Hefðbundin frímerki getur þú keypt á sölustöðum frímerkja og þú getur hannað frímerki með þinni mynd ef þú átt tilefni til.