09.10.2008

Friðarsúlan á frímerki

Imagine Peace frímerkiðFriðarsúlan í Viðey er myndefni á frímerki sem Pósturinn gefur út 9. október.

Friðarsúlan

Ljós Friðarsúlunnar í Viðey verður tendrað þann 9. október að viðstaddri listakonunni Yoko Ono. Pósturinn gefur út frímerki sama dag tileinkað Friðarsúlunni og þeim friðarboðskap sem hún er tákn um.

Útilistaverkið var reist í Viðey í Kollafirði á síðasta ári til að heiðra minningu Lennons sem féll fyrir kúlu byssumanns í New York 8. desember 1980. Ljós Friðarsúlunnar lýsir fram til dánardægurs hans en hún verður síðan tendruð aftur á gamlársdag og logar þá fram á þrettándann. Hún verður einnig tendruð í eina viku í kringum jafndægur á vori og jafnframt verður mögulegt með sérstöku samkomulagi Reykjavíkurborgar og listakonunnar að kveikja á henni utan ofangreindra tímabila.

Listakonan segist vonast til þess að ljóssúlan í Viðey verði tákn, krafts, visku og ástar og að sameiningartákn allra þeirra sem vilji leggja sitt að mörkum til heimsfriðar með hljóðlátum hætti. Á blaðamannafundi í Reykjavík 2007 sagði Yoko að við lifðum á flóknum tímum og þótt mikilvægt sé að fólk setji fram friðaróskir á opinberum vettvangi sé einnig mikilvægt að það finni hljóðlátari leiðir til þess með sjálfu sér. Í því sambandi geti ljósasúlan orðið einhvers konar hljóðlátt sameiningartákn þeirra sem vilja stuðla að friði með innhverfri íhugun.

Yoko Ono og Ingimundur SigurpálssonÓskatré

Verkið tengist einnig farandlistaverkinu Óskatréð sem Yoko Ono sýndi í fyrsta sinn árið 1981. Þetta listaverk hefur síðan verið á sýningum víða um heim og hvarvetna eru sýningargestir beðnir um að skrifa friðaróskir á þar til gerða pappírsmiða. Þessir miðar eru síðan hengdir á tréð. Þeir hefur verið komið fyrir í svonefndum tímahylkjum og það eru einmitt þessar óskir sem geymdar eru í óskabrunni Friðarsúlunnar í Viðey.

Fjölmargir aðila komu að uppsetningu verksins í Viðey, þar á meðal Menningar- og ferðamálaráð Reykjavíkur, Orkuveita Reykjavíkur, Listasafn Reykjavíkurborgar, verkfræðistofan VST, íslenskir arkitektar og japanskir hönnuðir.

Örn Smári Gíslason grafískur hönnuður, hannaði frímerkið.





Í dag er:

3.9.2010

Leturstærð



Leit