Hagnaður varð af rekstri Íslandspósts hf. á árinu 2007 að fjárhæð 230 milljónir króna og var EBITDA um 563 milljónir króna. Heildartekjur félagsins á síðasta ári námu 6,3 milljörðum króna og höfðu aukist um 11% frá fyrra ári. Heildareignir voru 4,3 milljarðar króna í árslok 2007 og eigið fé nam 2,6 milljörðum króna. Félagið greiddi 90 milljónir króna í arð til ríkissjóðs á árinu.
Lykiltölur úr rekstri:
"Pósturinn tryggir tengslin" er leiðarljós Íslandspósts hf. Þar segir í hnotskurn hvert hlutverk félagsins er. Starfsemi félagsins byggir á rúmlega 230 ára reynslu við dreifingu bréfa og böggla hvaðan sem er, hvert á land sem er. Íslandspóstur hf. sem sjálfstætt hlutafélag tók hins vegar til starfa þann 1. janúar 2008 þegar félagið tók yfir póstrekstur Pósts og síma. Hlutafélagið fagnar því 10 ára afmæli sínu á þessu ári.
Í samræmi við stefnu félagsins var á árinu staðið að byggingu nokkurra nýrra pósthúsa á landsbyggðinni og í sumarlok og á haustmánuðum voru ný pósthús á Húsavík, Reyðarfirði og í Stykkishólmi tekin í notkun. Gjörbyltir það allri vinnuaðstöðu á þessum stöðum. Hafin er bygging á nýju pósthúsi á Akranesi sem tekið verður í notkun vorið 2008 og auk þess verður hafist handa við byggingu fleiri pósthúsa á landsbyggðinni á árinu 2008, s.s. á Sauðárkróki og Selfossi.
Síðastliðin þrjú ár hefur umfangsmikil vinna verið lögð í skipulagningu og skilgreiningu á öllum verkferlum í starfsemi Íslandspósts með það að markmiði að fá viðurkennda vottun á gæðakerfi. Í lok ársins fékk félagið vottun á því, að starfsemin uppfyllti allar þær kröfur sem gæðastaðallinn ISO 9001 gerir um verkferla og vinnubrögð.