28.07.2010

Álagningarseðlar í dreifingu

RSK logoBréfberar hafa í nógu að snúast þessa dagana við að koma álagningarseðlum frá Ríkisskattstjóra til skila.

Þrátt fyrir að vefskil hafi aukist mjög á undanförnum árum er alltaf áþreifanleg sönnun að fá álagningarseðilinn inn um bréfalúguna. Álagningarseðlar 2010 eru komnir í dreifingu en í ár eru það um 150.000 seðlar sem hafa verið póstlagðir í 104.500 umslögum, því hjón sem eru samsköttuð fá álagningarseðlana sína í sama umslagi. Nánar: Vefur Ríkisskattstjóra

Þessir 150.000 álagningarseðlar, sem hver um sig vegur um 20 g eru samtals 3 tonn að þyngd. Álagningarseðlarnir eru almenn bréf sem eru borin út 1., 2., eða 3. virka dag eftir póstlagningu. Gæðamarkmið Póstsins miðast við að 85% af bréfapósti séu borin út fyrsta virka dag eftir póstlagningu. Að jafnaði eru bréf borin út til viðtakenda á tímabilinu 9:00-16:15 frá mánudegi til föstudags. 

 

 





Í dag er:

8.9.2010

Leturstærð



Leit