15.07.2010

Flöskuskeyti í pósti - nýjung

Flöskuskeyti sem komast inn um bréfalúguPósturinn hefur nú hafið sölu og dreifingu á flöskuskeytum. Flöskuskeytin, sem hægt er að kaupa á pósthúsum, eru sniðugar umbúðir fyrir skilaboð til vina og vandamanna innanlands sem erlendis. Flöskuskeytið samanstendur af plastflösku með fallegri mynd frá Íslandi öðrumegin en merkimiða fyrir nafn og heimilisfang viðtakanda hinum megin.

Flöskuskeytin eru fáanleg með tveimur myndum - mynd af eldgosinu í Eyjafjallajökli eða norðurljósamynd.

Flaskan inniheldur pappírsörk sem sendandi skrifar skilaboði sín á. Hann setur síðan miðann í flöskuna, lokar með tappa og póstleggur flöskuna á sama hátt og aðrar sendingar. Pósturinn sér síðan um að koma flöskuskeytinu til viðtakenda um allan heim.

 





Í dag er:

8.9.2010

Leturstærð



Leit