Pappír er í sátt við náttúruna segja þrjú íslensk fyrirtæki og benda á að evrópskir skógar fari sífellt stækkandi.
Fulltrúar fyrirtækjanna, Póstsins, Odda og Umslags, afhentu fyrstu kassana af pappír á leikskólanum Skógarborg í dag. Pappírsgjöfin er aðeins sú fyrsta af fjölda sambærilegra gjafa til allra leikskóla landsins sem dreift verður á næstu tveimur mánuðum. Gjafirnar eru liður í umhverfisverkefni sem beinir sjónum að ábyrgð pappírsframleiðenda sem hafa í meira en hálfa öld verið í fararbroddi í stækkun evrópskra skóga. Á hverjum degi eru ræktaðir upp skógar á svæði sem samsvarar 4363 knattspyrnuvöllum.
Kominn er tími til að umhverfissinnað fólk hætti að hafa samviskubit vegna pappírsnotkunar, því pappír á Íslandi er í sátt við umhverfið. Þetta eru skilaboðin sem Pósturinn, Oddi og Umslag hafa forgöngu um að koma á framfæri til almennings. Pappír hefur setið undir ómaklegum árásum og flökkusögum sem tími er kominn til að kveða í kútinn, segja forsvarsmenn þessara fyrirtækja. Við getum haft samviskubit vegna ýmislegs sem gert er á hlut náttúrunnar, en pappírsnotkun er ekki þar á meðal.
Í tilefni átaksins „Pappír í sátt“ munu fyrirtækin þrjú færa öllum leikskólum landsins pappír að gjöf. Alls eru það ríflega fjögur tonn af pappír sem verður dreift um allt land í hendur leikskólabarna á næstu mánuðum. Kemur hann örugglega í góðar þarfir, ekki síst í ljósi þess niðurskurðar sem víða hefur þurft að grípa til.
Nokkrar staðreyndir um pappír:
-
Pappír ógnar alls ekki regnskógunum - þaðan kemur ekki ein pappírsörk, heldur er landbúnaður sökudólgurinn.
-
Pappírinn okkar kemur frá evrópskum framleiðendum sem eru í heimsforystu um góða og sjálfbæra nýtingu skóglendis.
-
Skóglendi í Evrópu stækkar á hverjum degi sem samsvarar 4363 knattspyrnuvöllum.
-
50% af þeim viðartrefjum sem eru í nýjum pappír koma úr endurunnum pappír.
-
Hin 50% eru úr afgöngum frá byggingar- og húsgagnatimburvinnslu og frá nauðsynlegri grisjun á skóglendi
-
Einungis lítill hluti pappírs kemur úr nytjaskógum, og þeir skógar fara stækkandi með hverju ári.
-
Sameinuðu þjóðirnar hafa lýst því yfir að trjá- og pappírsiðnaður leiki stórt hlutverk í að milda loftslagsbreytingarnar.