28.01.2010

Ný frímerki - íslensk hönnun og selir

Íslensk hönnun - húsgagnahönnun

Fatahengið "Tré" 2001

Þetta er í annað sinn á þremur árum sem út koma frímerki tileinkuð íslenskri hönnun.

Þann 8. maí 2008 gaf Pósturinn út frímerkjaröð undir nafninu íslensk iðnhönnun enda vel við hæfi, því hönnun er mikið í umræðunni nú um stundir. Þessi frímerkjaröð tileinkuð innlendri hönnun beinir sjónum sínum hins vegar að íslenskri húsgagnahönnun.

Báðar þessar frímerkjaraðir taka á hönnun eins og hún er um þessar mundir en skoða ekki innlenda hönnun í sögulegu ljósi, til dæmis með því að gera gein fyrir eldri húsgagnahönnun.

Frímerkin tileinkuð húsgagnahönnun sýna eftirfarandi gripi:

Fatahengið „Tré“, 2001

Fatahengið Tré er meðal hönnunar gripa þeirra Katrínar Ólínu Pétursdóttur og Michaels Youngs sem notið hafa mestra vinsælda á alþjóðlegum vettvangi. Það er haganleg lausn á ákveðnum geymsluvanda í nútímahúsnæði og formrænir eigin leikar hengisins, sérstaklega skírskotunin til náttúrunnar, gera það að sannkallaðri híbýlaprýði.

Stóllinn „Tangó“, 1999

Sigurður Gústafsson hönnuður þessa sérstæða stóls er arkitekt að mennt og hefur nýtt þekkingu sína á sögu byggingarlistar og ýmsum fræðikenningum sem tengjast henni til endurskoðunar á ýmsum forsendum húsgagnahönnunar. Í stólnum Tangó „afbyggir“ hann stólformið og endurskapar sem óð til dansins með sama nafni, þar sem karllægir og kvenlægir þættir mætast í taktfastri hrynjandi.

Sófinn DímonSófinn „Dímon“, 1999.

Þessi sófi Erlu Sólveigar Óskarsdóttur ber ýmis höfundareinkenni þessa smekkvísa hönnuðar. Húsgögn Erlu Sólveigar eru jafnan létt og þokkafull að sjá. Þau einkennast einnig af sterku formskyni og óvenjulegri meðhöndlun á ýmsum innviðum húsbúnaðar, sem þó kemur ekki niður á þægindum þeirra.

Borðstofuborðið „MGO 180“, 2005.

Fyrir nokkrum árum lét fyrirtækið Epal endurgera borðstofustól eftir Svein Kjarval frá sjötta áratugnum og í kjölfarið fengu hönnuðirnir Guðrún Margrét Ólafsdóttir og Oddgeir Þórðarson það verkefni að hanna nútímalegt borðstofuborð sniðið að þessum stól. Borðið sem er úr eik, einkennist af virðuleik og straumlínulögun innviðanna, sem ber aftur vitni alþjóðlegum straumum í húsgagnahönnun.

Verðgildi frímerkjanna eru 75 kr, 140 kr, 155 kr, 165 kr.

Hönnuður frímerkjanna er Örn Smári Gíslason.

Selir við Íslandsstrendur

Ætlunin er að gefa út á næstu árum röð frímerkja með algengustu selum hér við land; landsel, vöðusel, hringanóra, útsel, blöðrusel og rostungi. Aðeins landselur hefur áður komið á frímerki en það var 16. október 1980.

Í dag eru gefin út frímerki með landsel og vöðusel.

Frímerki 220 kr - VöðuselurFrímerki 5 kr - Landselur

Landselur er algengasta selategundin við Ísland. Hann er önnur tveggja selategunda sem kæpir hér við land, hin er útselur. Stærð stofnsins er áætluð á bilinu 400 til 500 þúsund dýr. Landselir eru félagslyndir og oft má sjá hópa af þeim á ströndum.

Vöðuselur lifir í Norður-Atlantshafi og Norður-Íshafi. Hann er talsvert algengur flækingur við Ísland. Nafnið er dregið af því að áður fyrr gengu stórar vöður af þessum sel til Íslands. Stofnstærð vöðusela í heiminum er talin vera á tíundu milljón.

Verðgildi frímerkjanna er 5 kr, 220 kr.

Hönnuður frímerkjanna er Jóhann Jónsson





Í dag er:

9.3.2010

Leturstærð



Leit