14.01.2010

Pósturinn styrkir Grensás

Hollvinir Grensás ásamt forsvarsmönnum Póstsins

Pósturinn styrkti á dögunum verkefnið „Á rás fyrir Grensás“ um fimm hundruð þúsund krónur.

Á rás fyrir Grensás er yfirskrift söfnunarátaks sem Edda Heiðrún Backman stendur fyrir undir merkjum Hollvina Grensásdeildar. Markmið söfnunarátaks Eddu Heiðrúnar Backman og Hollvina Grensásdeildar er að safna 500 milljónum króna til nýrrar 1500 fermetra viðbyggingar við Grensásdeild sem mun hýsa sjúkraþjálfun, iðjuþjálfun og fleira.
 
Með bættri þjálfunaraðstöðu í nýju húsnæði skapast tækifæri til að bæta aðstöðu sjúklinga og fjölskyldna þeirra, jafnt innan dyra sem utan. Þar ber hæst nauðsynlegar lagfærar á sjúkraherbergjum, sem verða öll einbýli, þjálfunaríbúð, matsalur, endurhæfingargarður og endurskipulagning lóðar m.t.t. aðkomu og aðgengis.

Ef þú vilt láta gott af þér leiða bendum við á söfnunarreikning átaksins, reikningsnúmer: 311-26-3110, kennitala: 670406-1210. 

Sérstök athygli skal vakin á merki söfnunarátaksins.

Sundlaugur

  • Edda Heiðrún Backman hannaði merkið.
  • Hún teiknaði kallinn með munninum. Hún hefur líka skorið hann út í leir.
  • Hann heitir Sundlaugur í höfuðið á Guðlaugi Friðþórssyni.
  • Edda sótti innblástur í Guðlaug og þrekvirki hans þegar hann synti til lands eftir sjóskaða fyrir 25 árum síðan.
  • Hann liggur á bakinu og flýtur eða syndir í lífsins ólgusjó.
  • Rétt eins og Guðlaugur synti á bakinu og sá fuglana fljúga til lands. Þá bað hann múkkann að fyrirgefa sér að hafa hreytt í hann ónotum í gegnum tíðina, því hann vísaði honum leiðina til lands.
  • Tengingin við vatnið er mikilvæg því að í vatni upplifir fólk í stöðu Eddu Heiðrúnar svo mikið frelsi.
  • Þess vegna varð túrkis blái liturinn fyrir valinu, því hann er sami litur og er á flísunum í sundlaug Grensásdeildar.





Í dag er:

12.3.2010

Leturstærð



Leit