Fyrirmyndarfyrirtæki VR 2009
Pósturinn kom vel út úr könnun VR, Fyrirtæki ársins 2009, og var hástökkvari stærri fyrirtækja.
Pósturinn er hástökkvari ársins í hópi stærri fyrirtækja með einkunnina 4,35 og 8.sætið á listanum í ár en var í 42. sæti með einkunnina 4,03 í fyrra. Fyrirtækið er með raðeinkunnina 82 af 100 mögulegum. Þetta þýðir að 82% allra fyrirtækja sem tóku þátt í ár eru með sömu eða lægri heildareinkunn en Pósturinn og einungis 18% með hærri einkunn.
Í fyrra var raðeinkunn Póstsins 46, þá voru 46% fyrirtækja með sömu eða lægri einkunn en Pósturinn en 54% með hærri einkunn. Fyrirtækið hækkar því töluvert á milli ára eða um 36 stig miðað við raðeinkunnirnar. Ef einkunnir fyrirtækisins fyrir einstaka þætti eru skoðaðar má sjá að mesta hækkunin er fyrir þættina launakjör og ímynd fyrirtæksins en einkunn fyrir þessa þætti hækka um meira en 100% á milli ára.