Besti fyrirtækjavefurinn 2008
Postur.is hlaut föstudaginn 30. janúar 2009 verðlaunin besti fyrirtækjavefurinn 2008, þegar íslensku vefverðlaunin voru afhent af Samtökum vefiðnaðarins, SVEF
Alls voru á annað hundrað vefir tilnefndir, í alls átta flokkum en www.postur.is var alls tilnefndur í þremur flokkum.
Sérstaklega ánægjulegt var að hljóta þessa verðlaun í þessum flokki, þar sem vefur Póstsins árið 2000 hlaut einnig þessa viðurkenningu.
Umsögn dómnefndar:
Vefur Póstsins nær að veita aðgengi að miklum upplýsingum á mjög einfaldan og þægilegan hátt ásamt því að vera með afburðargóðan sölu- og þjónustuhluta með góðu framboði af sjálfsafgreiðslu og ítarlegum upplýsingum um þjónustu sem fyrirtækið veitir. Vefurinn er einfaldur, skýr og leiðir notandann áfram með góðu skipulagi og framsetningu ásamt því að útlit hans sómar sér vel í samræmi við ímynd fyrirtækisins og styður vel við innihald hans.
