Gæðavottun

Gæðastefna
Íslandspóstur ætlar að tryggja þjónustu í samræmi við Viðskiptaskilmála Póstsins. Það er gert með því að innleiða og viðhalda virku gæðakerfi fyrir alla þætti starfseminnar. Íslandspóstur ætlar að ná fram öguðum vinnubrögðum, kerfisbundinni skoðun á verklagi, greiningu vandamála og stöðugri umbótavinnu með það að leiðarljósi að bæta sífellt árangur fyrirtækisins.
Gæðavottun
Gæðastjórnunarkerfi Íslandspósts er vottað samkvæmt ISO 9001:2008 staðlinum.
Gæðavottunarskírteini ISO 9001:2008.pdf (299 KB) má sækja hér.
Gæðahandbók
Allir starfsmenn hafa aðgang að gæðahandbók Íslandspósts, Póstbókinni. Þannig tryggir fyrirtækið samræmda gæðaþjónustu við viðskiptavini. Einnig eru vöktunar- og umbótaferli sífellt í gangi innan fyrirtækisins til að greina vandamál og ná sífellt betri árangri.
Gæðastjóri
Gæðastjóri Íslandspóst er Sigríður Jónsdóttir. Gæðastjóri heyrir undir forstjóra.