Póstnúmerabreytingar

1. desember 2009

Póstnúmer 522 og 523 breytast í 524 Árneshreppur

Póstnúmer 522-523 voru lögð niður. Hér eftir verður notað póstnúmerið 524. Jafnframt breytist póstáritun í 524 Árneshreppur (var áður 524 Norðurfjörður). Þar með eru öll heimili í Árneshreppi með sama póstnúmer.

271 Mosfellsbær og 276 Mosfellsbær stofnuð

Bætt verður við dreifbýlisnúmerum, íbúar í dreifbýlinu sem voru áður í póstnúmeri 270 Mosfellsbær fá sitt eigið póstnúmer. Svæðið sem tilheyrir Kjósarhreppi fær póstnúmerið 276 Mosfellsbær. Svæðið sem er utan þéttbýlis í Mosfellsbæ fær nú póstnúmerið 271 Mosfellsbær.

1. júní 2005

Breytingar á mörkum póstnúmera 110, 112, 113, og 270

Póstnúmer 113 afmarkast í suðri af línu sem dregin er frá gatnamótum Suðurlandsvegar og Vesturlandsvegar yfir Hólmsheiði í Stóraskyggni. Frá Stóraskyggni til norðurs eru mörkin samkvæmt bæjarmörkum Reykjavíkur og Mosfellsbæjar að Vesturlandsvegi.

Mörkin milli póstnúmera 112 og 113 eru Vesturlandsvegur að bæjarmörkum Reykjavíkur og Mosfellsbæjar. Mörkin milli 112 og 270 eru bæjarmörk og fylgja því að mestu leyti Úlfarsá til sjávar.

Til áréttingar eru mörkin milli póstnúmera 110 og 112 við lækinn í botni Grafarvogs og Grafarvogur í framhaldi af því.

Núverandi póstföng sem fá nýtt póstnúmer við þessar breytingar eru:

Póstfang Var Verður
Akurholt 110 113
Birkihlíð 110 113
Engi 110 113
Fífilbrekka 110 113
Grafarholt 110 113
Hamar 110 113
Lambhagi 110 113
Laxalón 110 113
Lundur 110 113
Mæri 110 113
Skyggnir 110 113
Stekkur 110 113
Suðurhlíð 110 113
Úlfarsfell 110 113
Úlfarsfell II 110 113
Úlfarfellsvegur 110 113
Þrístikla 110 113

Önnur póstföng sem kunna að falla innan ofangreindrar skilgreiningar.

Þessar breytingar taka gildi þann 1. júní 2005 og hafa verið tilkynntar viðeigandi stofnunum og fyrirtækjum.

1. desember 2004

Egilsstaðir

Frá og með 1. desember 2004 voru götur í Fellabæ, sem hafa haft póstáritunina 701 EGILSSTAÐIR, breytt í póstáritun 700 EGILSSTAÐIR.

  • Aspargrund
  • Ásbrún
  • Brekkubrún
  • Dalbrún
  • Einhleypingur
  • Fífuhvammur
  • Fjóluhvammur
  • Grundartún
  • Hamrafell
  • Háafell
  • Heimatún
  • Helgafell
  • Kauptún
  • Lagarbraut
  • Lagarfell
  • Lágafell
  • Miðfell
  • Reynihvammur
  • Skólabrún
  • Smárahvammur
  • Smiðjusel
  • Sunnufell
  • Ullartangi

Nýtt póstnúmer 512 Hólmavík stofnað, eftirfarandi bæir sem tilheyrðu fyrrum Nauteyrarhrepp í póstnúmeri 510 fá þetta nýja póstnúmer.

  • Laugaból
  • Kirkjuból
  • Nauteyri
  • Hafnardalur
  • Melgraseyri
  • Laugaland
  • Laugarholt
  • Skjaldfönn

1. desember 2003

Reykjanesbær og Reykhólahreppur

Frá og með 1. desember 2003 voru gerðar eftirfarandi breytingar á heitum eftirtaldra póstnúmerastaða. Skilgreining þessara svæða verður sú sama og áður var.

  • 230 verður Reykjanesbær en ekki Keflavík
  • 232 verður Reykjanesbær (pósthólf) en ekki Keflavík. (pósthólf)
  • 233 verður Reykjanesbær en ekki Hafnir.
  • 260 verður Reykjanesbær en ekki Njarðvík
  • 380 verður Reykhólahreppur en ekki Króksfjarðarnes

Eftirfarandi staðir sem liggja nálægt rótum Úlfarsfells voru fluttir í póstnúmer 113 Reykjavík.

  • Birkihlíð
  • Suðurhlíð
  • Akurholt
  • Hamar
  • Úlfarsfell 1-2
  • Skyggnir
  • Bassastaðir

Eftirfarandi bæjarnöfn sem voru 825 Stokkseyri verða 801 Selfoss

  • Vestri Grund
  • Eystri Grund
  • Bjarmaland

Eftirfarandi bæjarnöfn sem voru 820 Eyrarbakki verða 801 Selfoss

  • Sólvangur

Eftirfarandi Bæjarnöfn sem voru 610 Grenivík verða 601 Akureyri.

  • Akurbakki
  • Finnastaðir





Í dag er:

11.3.2010

Leturstærð



Leit