Fjölbýlishús
Þegar fleiri en þrjár íbúðir hafa sameiginlegan inngang er nauðsynlegt að setja upp póstkassasamstæður sem næst aðalanddyri svo bréfberi hafi óhindraðan aðgang að þeim.
Í anddyri fjölbýlishúsa þarf að vera skrá yfir alla íbúa hússins. Þar þarf að koma fram á hvaða hæð þeir búa og númer íbúðar. Er þetta í samræmi við ákvæði byggingareglugerðar nr. 441/1998 kafla 80.2.
Póstkassi þarf að fylgja hverri íbúð í fjölbýlishúsi.