Allar sendingar sem koma með Póstinum til einstaklinga erlendis frá þarf að tollafgreiða. Þrjár gerðir tollafgreiðslu eru mögulegar:
Tollskoðun er framkvæmd af Tollgæslu og sendingar eru einungis opnaðar á opnunartíma, mánudaga - föstudaga, milli kl. 08:00 og 15:30. Upplýsingar um tollflokka og gjöld er að finna á vef Tollstjóra. Leitarorð þurfa að vera í fleirtölu.
Afhending
Pakka- og ábyrgðarsendingar eru skráðar við komu til landsins. Kvitta þarf fyrir móttöku á öllum pakka- og ábyrgðarsendingum að utan.
Ef þú átt von á því að vera ekki heima þegar ábyrgðarsending er afhent getur þú veitt öðrum á heimilinu umboð til að taka við sendingunni fyrir þína hönd. Ef enginn er heima þegar sending er keyrð út, er skilin eftir tilkynning, sendinging er send á næsta afgreiðslustað og bíður hún þín þar daginn eftir.
Erlendar bréfasendingar, tollskyldar og rúmfrekar, eru tilkynntar og þarf að sækja á pósthús. Tilkynningar um tollskyldar sendingar eru sendar í pósti en hægt er að sækja um: Tilkynning um tollskylda sendingu í tölvupósti.pdf (24 KB)
Hægt er að panta heimsendingu, gegn gjaldi, þar sem Pósturinn hefur heimaksturskerfi.
Ef þú hefur fengið viðtökunúmer sendingar (frá sendanda) sem þú átt von á er hægt að finna hvar hún er.
Í dag er:
3.9.2010
|