Pósthúsið í Vigur í Ísafjarðardjúpi er alltaf jafn vinsæll áfangastaður fyrir innlenda sem erlenda gesti eyjunnar, en það er jafnframt það minnsta á Íslandi og þó víðar væri leitað.
„Það er mikið um að fólk kíki í pósthúsið, kaupi póstkort og sendir það héðan“, segir Hugrún Magnúsdóttir í Vigur. „Þeim finnst þessi stimpill auðvitað sérstakur enda með þeim sjaldgæfari á landinu. Þetta er alltaf mjög gaman“. Mikið hefur verið um gestagang í eyjunni það sem af er sumri líkt og fyrri ár. Eyjan er til dæmis vinsæll áfangastaður fyrir farþega skemmtiferðaskipa sem hafa fjölmennt í eyjuna í júní enda nokkuð um komu skipa til Ísafjarðar í mánuðinum.
Áður birt á bb.is