28.05.2009

Nýtt pósthús á 550 Sauðárkróki

550 Sauðárkrókur

Pósturinn opnar nýtt pósthús að Ártorgi 6, Sauðárkróki og er það fimmta nýja pósthúsið á landsbyggðinni sem Pósturinn byggir frá grunni, á eftir Húsavík, Reyðarfirði, Stykkishólmi og Akranesi. Nýju pósthúsin munu auka til muna þjónustu við viðskiptavini og eru liður í að nútímavæða póstþjónustuna. Skóflustungan að nýja pósthúsinu var tekin fyrir rúmu ári síðan eða þann 8. maí 2008.

Í nýju húsnæði er boðið upp á aukna þjónustu til að koma til móts við breyttar þarfir viðskiptavina. Hér er meðal annars átt við sölu á ýmiskonar vörum eins og skrifstofuvörum, ritföngum, pappír, geisladiskum, póstkortum, gjafakortum og öðru sem mikilvægt er fyrirtækjum, einstaklingum og ferðalöngum.

Í nýjum pósthúsum eru „Samskiptaborð", sem eru nýjung í þjónustu Póstsins. Þar er í boði netaðgangur, mögulegt er að prenta út gögn og ljósmyndir, skanna og ljósrita svo eitthvað sé nefnt. Einnig gefst viðskiptavinum kostur á að panta aðra þjónustu Samskipta á pósthúsunum og fá senda um hæl.

Í tilefni af opnuninni mun Pósturinn bjóða til hátíðar laugardaginn 30. maí frá kl. 13-15 í nýja pósthúsinu að Ártorgi 6. Þar verður boðið upp á grillaðar pylsur, skemmtiatriði og leiktæki fyrir börnin auk þess sem gestum verður boðið að skoða nýja húsnæðið.





Í dag er:

10.9.2010

Leturstærð



Leit