Póstafgreiðslunni á 360 Hellissandi, Klettsbúð 7, hefur verið lokað frá og með 16. október 2009. Pósthúsið í 355 Ólafsvík verður nú þjónustupósthús fyrir 360 Hellissand og 360 Rif.
Landpóstur sem sinnir Hellissandi og Rifi mun bæði sjá um að taka við og dreifa bréfum og stærri sendingum til íbúa. Um er að ræða nær alla þjónustu sem boðið er upp á í almennri póstafgreiðslu.
Ef ekki er hægt að afhenda skráða sendingu, þá fer póstsending aftur til Ólafsvíkur þar sem viðkomandi getur nálgast sendinguna. Íbúar geta þó óskað eftir einni aukaafhendingu, án aukakostnaðar. Þetta á við um ef íbúi var ekki heima við þegar fyrri tilraun til afhendingar átti sér stað.
Fyrirkomulagið verður á þann veg að póstur til dreifingar fer frá Ólafsvík að morgni og fer dreifing fram á milli kl. 10:00 og 15:00. Hægt er að ná í starfsmann í síma 825 1147, ef óskað er eftir póstleggja sendingu og verður hann með sjóð og greiðsluposa. Póstur sem póstlagður er, fer síðan seinnihluta dags til Ólafsvíkur til vinnslu og frágangs og þaðan um kvöldið í hefðbundna póstdreifingu.
Póstkassi verður áfram við gamla pósthúsið við Klettsbúð 7 og einnig verður settur upp póstkassi við Verslunina Virkið Hafnargötu 11, Rifi. Póstkassarnir verða tæmdir alla virka daga.
Frímerki verða til sölu í Hraðbúð Esso við Útnesveg og í Versluninni Virkinu á Rifi.
Nánari upplýsingar er hægt að fá hjá þjónustuveri í síma 580 1200, en einnig veita starfsmenn Póstsins í póstafgreiðslunni í 355 Ólafsvík nánari upplýsingar í síma 436 1100.