23.09.2009

Póstmiðstöð 110 Reykjavík fær IPC gæðavottun

IPC vottun móttekinÞriðjudaginn 22. september fór fram í Póstmiðstöð athöfn þar sem Ross Hinds framkvæmdastjóri hjá IPC (International Postal Corporation) afhenti Ingimundi Sigurpálssyni, forstjóra Póstsins, viðurkenningu á því að Pósturinn hafi staðist úttekt á vinnslu á bréfapósti til og frá landinu.

Úttektin felst í því að skoðuð eru ferli og vinnubrögð við vinnslu á erlendum bréfapósti í Póstmiðstöðinni og á Keflavíkurflugvelli. Auk þess að staðfesta að vinnsla á þessum stöðum standist fyllstu kröfur er einnig gengið úr skugga um að samskipti við aðrar vinnslueiningar Póstsins, aðrar póststjórnir og flutningsfyrirtæki, séu í föstum skorðum og uppfylli gæðastaðla sem IPC hefur sett.

Unnið hefur verið að undirbúningi vottunarinnar síðastliðið ár og þótt hún hafi ekki kallað á mikla breytingu í vinnslu á pósti hafa merkingar á svæðum, skjölun og samskipti, bæði innan Íslandspósts og út á við, verið sett í fastari skorður.

Póstmiðstöðin í Reykjavík er sú 24. í heiminum sem fær umrædda vottun, Certificate of Excellence og benti Ross Hinds á, að til þess að fá vottun þyrfti að sýna fram á að fyrirmyndar vinnslu.

Á myndinni eru: Tryggvi Þorsteinsson framkvæmdastjóri framkvæmdasviðs, Kjartan Flosason forstöðumaður Póstmiðstöðvar, Helga Bolladóttir deildarstjóri bréfadeildir og Reynir Þorsteinsson sérfræðingur skrifstofu Póstmiðstöðvar.





Í dag er:

10.9.2010

Leturstærð



Leit