Pósturinn og Já semja um dreifingu og afhendingu símaskrárinnar á landsbyggðinni
Samningurinn felur í sér afhendingu símaskrárinnar á pósthúsum á kjarnastöðum, á pósthúsum í samstarfi, afhendingu símaskrár í dreifbýli og sölu á harðspjaldasímaskrám. Einnig taka pósthúsin á landsbyggðinni við gömlum símaskrám til endurvinnslu.
Guðrún María Guðmundsdóttir, ritstjóri Símaskrárinnar og Héðinn Gunnarsson, forstöðumaður söludeildar Póstsins undirrituðu á dögunum samning þess efnis.